Nýtt greinaátak - 10. maí Kæru sápuunnendur.

Þetta er nú reyndar bara smá tilkynning:

Nú fer í gang nýtt greinaátak og mun það standa út maímánuð (þar sem margir eru í prófum og hafa nóg að gera stendur átakið nokkuð lengi).
Nú langar mig að biðja ykkur að lýsa draumahlutverki ykkar í einhverri sápu sem þið hafið áhuga á. T.d. mynduð þið vera í einhverri fjölskyldu sem er til í viðkomandi þætti? Hvar mynduð þið búa, vinna við, hvernig týpur væruð þið, hvað myndi helst geta gerst í ykkar lífi o.s.frv. (og þá á ég við persónuna sjálfa).
Það væri nú gaman ef einhverjir myndu semja svona grein. Ef þið viljið ekki hafa ykkur sjálf í hlutverki nýju persónunnar þá bara skrifið þið um nýja persónu í sápu. Hvernig persónu viljið þið sjá í ykkar þætti?

Hlakka til að lesa svona greinar (góð hugmynd fyrir þá sem aðhyllast spunaskrif)

Karat; stjórnandi á Sápum.