Nágrannar vikan 2 - 6 Maí Sjálfstraust Stringray var en frekar lágt þannig að hann ákvað að fara í fína matarboðið sem Serenu var boðið í hjá Simoni. Serena sagði Simoni að þótt að Stringray væri ekki eins gáfaður og ríkur þá væri það ekki ástæða til að gera grín að honum og Stringray heyrði það allt og varð fúll við hana. Þegar þau voru komin heim til Serenu þá sagði Stringray Serenu að hann væri komin með nóg af snobbinu og montinu í henni og sagði henni upp. Jack hélt áfram að klúbba með Olivu og hann loksins viðurkenndi fyrir mömmu sinni að hann væri skotin í henni. En það sem hann vissi ekki að Oliva væri nýji löggufélagi Stu. Lou var nokkuð viss um að hann myndi selja númer 30 á góðu verði því að Valda ætlaði að bjóða í það, en hann fékk minna fyrir húsið en strákarnir buðu honum fyrst og var hann ekki ánægður með það en Valda sagði honum að vera ekki svona fúll því að hann hefði fengið meira fyrir það en hann keypti það á.
Karl og Max voru báðir áhyggjufullir yfir Izzy. Max sagði Karl að það hefði verið staður sem þau hefðu farið á þegar þau voru lítil og hann ætti að leita að henni þar. Hann fann hana vinnandi sem gengilbeina á hóteli. Izzy bað Karl um að fara og láta hana og barnið vera því að ef hún kæmi heim þá gerði hún bara illt verra, Karl neitaði því og sagðist gera allt fyrir hana og barnið. Izzy trúði Karl og fór með honum heim og varð Max fegin að fá hana heim aftur.
Stu vissi ekki að Oliva væri klúbbfélagi Jack’s og hún öðlaðist virðingu hans fyrsta daginn með því að góma bílaþjóf. Steph var sár yfir því að Izzy vildi ekki barn en hefði orðið ólétt og að hún vildi barn en varð ekki ólétt. Lyn byrjaði að skipta sér aftur að brúðkaupinu og Steph sagði við hana að þau væru búin að ákveða að gifta sig á litlum stað í sveitinni. David og Lil voru ánægð yfir því að Stringray og Serena hefðu hætt saman. Harold sagði David að það væri snobbið í Serenu sem hefði bundið enda á sambandið og David varð fyrir vonbrigðum, Harold sagði honum að eyða meiri tíma með henni til að styrkja feðgina tenglsin. Þau gerðu það og David fór með Serenu á Grease Monkey's og í Luna garðinn. Serena fór hjá sér og skammaðist sín fyrir fíflalætin í pabba sínum.
Libby fékk póst frá manni sem var að svara dálknum hennar í blaðinu. Hann vildi að hún tæki viðtal við hann á netinu. Libby varð hugfangin af hugmynd hans að vinna gömlu ástina sína aftur.
Max hvatti Tom að heimsækja Susan, en þegar Tom kom í númer 28 sagði Sindi honum að Susan væri farin úr bænum. Hún lét Tom samt fá heimilsfangið á staðnum sem hún var á og hann fór til hennar. Þegar hann var komin til hennar kysstust þau og aðeins meira en það :P Eftir það töluðu þau um hvert samband þeirra stefndi eða hvort að þetta væri samband yfir heildina. Hún sagði honum að hún vildi ekki vera ástæðan fyrir því að hann myndi hætta að vera prestur.