Greinarátak! Jæja maður verður víst að skrifa….Ég ætla að taka Nágranna fyrir núna…

Það sem ég vildi helst spóla yfir var og er það þegar Drew og Dee dóu, það var náttúrulega bara það sorglegasta í heimi!!!
Svo þegar Izzy kom!! Arggggg hún er svo leiðinleg! Svo þegar hún byrjaði að nota Karl þá vildi ég og vil en spóla bara yfir það…Svo er það líka þegar allir þessi skemmtilegu fóru Libby, Mal og þau (þið skiljið hvert ég er að fara með þetta..vonandi)En sem betur fer kom Libby aftur og þá var ég glöð,helst vildi ég bara stoppa þá og hafa það bara þannig en life goes on…Svo þegar Todie féll í dá þá vildi ég bara spóla og spóla og spóla þangað til að hann vaknaði…. Svo þegar Karl og Susan skildu þá vildi ég spóla líka og svo eru margir hlutir eftir að koma sem að ég vil svo sannarlega spóla mjöööög hratt yfir!! En þetta er svona það eina sem að mér dettur í hug í augnablikinu og þá held ég að ég hætti bara núna… Vonandi er þetta nóg, því að ég get ekki tekið þetta aftur :) Endilega komið með álit og segið mér hvað ég má laga og gera betur því að einhversstaðar þarf maður að byrja og ef að maður fær ekki leiðbeningar þá verður maður fastur í sama farinu eða eitthvað þannig (ég er að reyna að hljóma gáfulega) En endilega komið með álit :)