Izzy-hvað gerist í hennar málum? Hér að neðan ætla ég að tala örlítið um Izzy í Nágrönnum og segja frá því hvað mér finnst að eigi að gerast í hennar málum.

Izzy Hoyland er kona um þrítugt og hún er vön að vefja karlmönnum um fingur sér. Henni gengur hins vegar ekki eins vel að halda í þá. Konum er hins vegar flestum ekki eins vel við stúlkuna þar sem þær sjá oftar en ekki í gegnum hana og klækjabrögð hennar. Sumar eru jafnvel hræddar um menn sína í návist hennar.
Síðan Izzy birtist fyrst í þáttunum hefur hún verið í samböndum við þrjá menn. Fyrstur var það Jack Scully sem hún leik sér með sem e.k. dúkkustrák. Hún vildi hins vegar hafa þetta leyndarmál og ekki að neinn vissi um samband þeirra og alls ekki hitta hann nema þegar henni hentaði eða langaði að sofa hjá! Sambandið gekk ekki upp enda ekkert samband sem slíkt.
Síðan snéri Izzy sér að bæði Karli Kenney og Gus Cleary. Sá fyrrnefndi var giftur en augljós hrifning var á báða bóga. Gus var hins vegar ágætis lausn fyrir Izzy og hún ætlað um tíma að hafa hann að framtíðarmanni, sennilega til að sanna sig fyrir fjölskyldu og “vinum”. Izzy og Gus hættu saman m.a. vegna sjúkleika hans. Nú er hún ólétt eftir hann en lætur sem Karl sé faðir barnsins, en nýlega snéri hún sér algerlega að honum. Hann er farinn frá konunni sinni og Izzy er flutt inn til hans og virðast þau vera frekar hamingjusöm, þó svo að Izzy hafi áhyggjur af barninu (ef allt kemst upp).

Það sem ég myndi vilja að gerðist í sambandi við Izzy er að allt komist upp í sambandi við barnið sem hún gengur með. Hver réttur faðir þess sé. Ég myndi vilja að þetta færi allt upp í háaloft og jafnvel að Gus kæmist að þessu líka. Það væri þá fróðlegt að sjá hvað Karl myndi gera í framhaldinu, hvort hann myndi fyrirgefa Izzy lygina eða hvort hann myndi hætta með henni. Mér finnst þetta vera efni í svolítið spennandi þætti. Það er ekki laust við að maður vorkenni Izzy smávegis, en ég myndi gjarnan vilja sjá þetta koma allt í bakið á henni þar sem ég tel hana vera algjöra hjónabandsnöðru.

Karat.