Tilkynning um nýtt greinaátak Kæru sápuunnendur.

Greinaátökin okkar hafa verið mjög vinsæl og þess vegna ætla ég að koma með nýtt átak sem hefst í dag. Áætlað er að nýjasta átakið muni standa til fyrsta maí.

Í þessu greinaátaki felst að skrifa/semja atriði eða atburð sem þið mynduð vilja að gerðist í ykkar uppáhalds sápu eða sápum. Þá má nefna sem dæmi Izzy og Karl í Nágrönnum og hvað þið mynduð vilja að gerðist næst hjá þeim eða eitthvað sambærilegt.
Nauðsynlegt er að kynna persónurnar smávegis fyrir lesenum fyrst og í hvaða aðstæðum þær eru núna í viðkomandi þætti.

Ég vona að einhverjum finnist þessi hugmynd góð og fari að skrifa greinar í þessum anda.

Karat.