Gus - Nágrannar Gus kom inní þættina fyrir ekki svo all löngu síðan sem vinur Max frá Olíupallinum.
Ég held að þeir sem hafa horft á þættina í meira en ár vita að þegar Boyd, Summer og Rosie komu var Max enn að vinna á pöllunum. Hann kom svo bara seinna meir og svo fór Rosie (sem mun vera mamma Max og Izzy) og svo enn seinna birtist Izzy og keypti helminginn í “The Coffie Shop”, þar sem að hún vinnur núna eins og flest allir ættu að hafa tekið eftir - þar hefur hún bætt upp á margar uppskriftir og komið með nýjar hugmyndir sem hljóma til ungs fólks (hver mann ekki eftir þáttunum með konfektinu sem allir urðu svo ástfangnir af?). En nóg um það..
Max hafði rekið Gus fyrir að hafa eyðilagt eitthvað þar og komst síðan seinna meir að Gus hafði verið sonur yfirmannsinns.

Gus byrjaði í nágrönnum með því að birtast þegar þau voru að reyna kaupa húsið sem þau búa núna í (Number 32, Max, Boyd, Steph, Summer og Izzy þangað til í þættinum í dag, hún flutti til Karls). Hann stal fjölskyldumynd af þeim og byrjaði svo að koma sér inní fjölskylduna. Hann hafði boðið 40þús dollara meira í húsið til að Max færi í skuld, hann sagði síðan seinna meir við Max að honum hafi fundið þetta fyndið og hafði verið að grínast með þetta allt saman og borgaði peninginn á milli.

Hann reyndi að vera faðir Summers og Boyds í staðinn fyrir Max og reyndi að vera besti vinur Steph's og reyndi svo við Izzy. Hann og Izzy voru svo byrjuð að deita eitthvað sem fór auðvitað allt í klúður þegar það kom í ljós hvernig hann var í alvöru. Izzy gengur nú með barnið hans en í þættinum í dag (12 april) laug hún því að honum að hún hafi haldið framhjá honum og sagði honum bara að halda áfram með líf sitt og hann ætti ekkert barnið. Hann trúði því og er nú á leið til Perth til að vera nálægt fjölskyldu sinni.

Gus bjó á meðan hann var í þáttunum í bakherberginu á kránni hjá Lou.
Summer sagði að hún vildi að Gus væri pabbi sinn en ekki Max þegar mest var í gangi en Boyd sá eiginlega í gegnum hann - eins og nokkrir aðrir.
Þar að meðal var Karl sem sá í gegnum hann.
Karl fór svo og leitaði af upplýsingum um hann á netinu og fann að hann hafi verið geðsjúkur og gert margt sem slæmt var.
Margir vildu ekki trúa honum en Izzy neitaði að vera með honum lengur og sagði að þetta væri ekki eina ástæðan - en allavega stór ástæða samt.

Þegar Max komst að því að Gus hafði verið að láta deyfilyf og svefntöflur í matinn hans og bjórinn hans fékk hann nóg og þau reyndu að skipta um húslykil en Gus náði auðvitað að copy-a hann og komst þess vegna inní húsið.
Hann reyndi að hjálpa Max og fjölskyldu hans og þess vegna var hann að þessu. Hann fattaði ekki að þetta væri að særa fólk og meira.. Hann er nú auðvitað geðveikur!
Svo þegar hann var að þrífa hjólið hennar Steph (hún var nýkomin til baka úr fræðslunni sem hún hélt) þá gleymdi hann símanum sínum og Max hringdi í hann og fann hann úti. Gus fannst svo bak við stafla af drasli og Max elti hann þegar hann reyndi að flýgja.

Þeir fóru uppí hús sem enn var verið að byggja og á endanum duttu þeir niður af aðrari hæð. Max lenti á spítala og seinna fannst Gus og var settur til sálfræðinds þar sem hann hefur verið þangað til í dag.
Gus hefur farið í taugarnar á mér síðan hann kom fyrst í þættina eins og ég hef kannski nefnt áður. Ég er fegin að hann sé farinn og vona að hann komi aldrei aftur.

Takk fyrir mig og lesninguna.