Áður en ég sendi grein um atburðinn sem mig hefur helst vilja langað til að hætta að horfa á eða breyta. Ætla ég að skrifa um minn uppáhaldsatburð í Neighbourse.

En það er tvímælalaust þegar Lance var að reyna að vinna ást stúlku að nafni Alana. En til þess að vinna hjarta hennar þurfti hann að ganga í gegnum 7 þrautir.
Í einni þrautinni þurfti hann að finna gamlan Sci-Fi sjónvarpsstjörnu, Jimmy Le Van og láta taka mynd af sér með honum. Aðrar þrautir voru til dæmis að gera sína eigin Sci Fi mynd, það var frábært maður á aldrei eftir að gleyma því atriði, hann klæddi hundinn Bob sem marsbúa og hvað eina. Ein þrautin var svo aðsannfæra Libby um það að geimverur séu til, svo man ég líka eftir að hann átti að ná í brot af gervihnattartungli sem hann náði aldrei í því það mátti enginn koma nálægt svæðinu sem það hafði hrapað á en Lance gaf Alönu eitthvað plast drasl í staðin sem hún var bara mjög ánægð með.

Ég gleymi því svo ekki þegar Lance vildi fara á eitthvað Star Track ráðstefnu, mig minnir til að hitta Alönu og líka af því að hann var Star Track geek. Hann fór í sjálfsögðu í búning en það besta við það var að honum tókst að draga Toadie með sér sem að þurfti að sjálfsögðu einnig að gang í slíkum klæðnaði og hann í þessum spandex búningi með svona álfa eyru er bara hrein snilld. Ég hef sjaldan hlegið jafn mikið og akkúrat á þessu augnabliki. Ef ég mundi finna mynd af þessu mundi ég setja hana með en ég hef ekki enþá fundið góðar Granna myndasíðu.

Annað atriði ótengd þessu en verður að teljast mjög fyndið atriði er þegar Gino vantaði fyrirsætur fyrir tísku sýningu og fékk Toadie, Stuart og Connor til að taka þátt. Þeir voru fáránlega málaðir í mjög kjánalegum fötum og það er bara ekki hægt að lísa því þegar þeir voru á sýningarpöllunum að sýna fötin því það var svo fáránlega fyndið.