Nýtt greinaátak á Sápuáhugamálinu Nú er sápukúluátakið okkar á enda og það tókst mjög vel. Við fengum inn margar skemmtilegar sápukúlugreinar og vil ég hér með þakka öllum þeim sem sendu inn greinar. Ef einhvern langar að senda inn svoleiðis grein er það að sjálfsögu enn þá hægt þó átakið sé liðið (sjá tilkynningu ef þið vitið ekki hvað ég á við með sápukúlugrein). Yfir 20 manns sögðu “ég ætla” að senda inn svona grein og ég á enn eftir að sjá greinar frá að minnsta kosti helmingi þessa fólks.


En að nýju átaki.

Í dag, þann 4. apríl hefst nýtt greinaátak á sápuáhugamálinu og mun það standa til 18. apríl n.k.

Í þessu átaki felst að skrifa grein um þann atburð sem höfundi greinarinnar fannst óþægilegastur, erfiðastur eða eitthvað þess háttar í sinni uppáhalds sápu eða sápum. Þá er átt við atriði þar sem maður hefur helst viljað hætta að horfa eða geta breytt atburðarásinni. T.d. um slíka atburðarás má nefna þegar einhver svíkur einhvern, heldur fram hjá, fremur glæp, gerir einhverja algjöra vitleysu eða einhver deyr. Sem annað dæmi um svona atburð má nefna myndina sem fylgir með þessari tilkynningu, en í Nágrönnum lenti Stuart nýlega í erfiðu máli, með Lífvirkjana, sem maður hefði helst viljað spóla yfir (a.m.k. ég).
Endilega farið að senda inn svona greinar.

Karat, stjórnandi á Sápum.