Ég er stórhrifin af þessum átökum sem eru í gangi. Ég tók ekki þátt í því fyrra með uppáhalds persónuna því ég var nýbúin að senda inn grein um hana Sky sem er mín uppáhalds persóna (en þá bara í nágrönnum).

Nágrannar; Eftir minnilegustu atriðin mín eru þau þegar Steph og Flick voru að rífast um Marc og Steph ætlaði að giftast honum en hann fór frá henni.
Þegar Flick og Shell fara til New York.
Þegar Tad fer líka til Bandaríkjana.
Þegar Sky og Boyd voru að byrja að deita.
Þegar Steph greinist með brjóstakrabbamein.
Þegar Toadie og Dee gifta sig (þá þegar hún lést líka).
Þegar Darcy stal frá Susan og Karl og allt það sem fylgdi því.
Þegar Lance var að reyna heilla geimverustelpuna.
Þegar Gus kom og eyðilagði Nágranna!
Þegar Billy og Anne fluttu burt.
….Svona gæti ég haldið áfram lengi lengi en þetta er bara svona nýlegasta sem ég man eftir og stendur uppúr (fyrst að flestir sem lesa þetta eru ekki búnir að vera áhorfendur til lengri tíma).

Úr The O.C. eru það;
Þegar Ryan kemur inná heimilið þeirra og Kirsten leyfir honum það ekki.
Þegar þau fara til Mexico og Marissa tekur of margar verkjatöflur.
Þegar Seth og Summer sofa saman, snilldar þáttur.
Þegar Teresa segist vera ólétt og Ryan flytur burt.
Þegar þau fara til Vegas og ráða einhverjar vændiskonur án þess að vita það og skulda mikinn pening.
Þegar Marissa og Ryan hætta saman.
Allt vesenið sem kom í kringum Oliver!! *Tímabilið sem ég var bara virkilega reið við the oc*.
Þegar Seth siglir burt *gleymi því nú ekki, var svo sorglegt að ég grét*..
Svo er það mörg atriði úr aðrari seríu en ég má víst ekki segja þau hérna þannig að ég sleppi því bara :)

Glæstar Vonir; Það er nú langt síðan ég hef verið að fylgjast með þeim þáttum en eitthvað hef ég verið að gera það smá saman…
En eftir minnilegustu atriðin eru;
Þegar Brook fæðir Rick í bústaðnum.
Þegar Taylor er föst í eyðimörkinni hjá kóngi eða einhverjum þannig gaur og allt fer í rúst.
Þegar Amber missir barnið sitt og stelur Eric litla - og eiginlega allt málið í kringum það, sem hefur verið í gangi í þáttunum mjög lengi.. Held að allir viti nú um hvað það er :)

En þetta eru svona eftirminnilegast sem mér dettur fyrst í hug. Kannski það sé verið að biðja um ýtarlega lýsingu á atriðinum - en ég tók ekki eftir því í síðustu greinum þannig að ég læt þetta duga :)
Takk fyrir lesninguna.