Sindi Watts - Neighbours gæti verið spoiler veit ekki Sindi Watts er einn af þessum karakterum sem býr ekki í götunni en kemur samt mikið við. Hún minnir svolldið á Dee þegar hún var fyrst að koma inn í þættina þá fór hún eitthvað í taugarnar á manni en samt einhvern megin vill maður sjá meira af henni og svo fer hún að vera meira og meira þolanlegri!!!

Sindi kom fyrst inn í þættina þegar systir hennar var með Darcy. Hún hitti hann first á pöbbnum og þau fóru að spjalla, þá vissi þau hvorugt neitt um hvort annað. Sindi fór að reyna við hann og endaði svo með að kyssa hann, eftir það bauð hún honum á hótelherbergið sitt. Svo furðulega vildi til að hann neitaði. Seinna þegar systir Sindi, Penny, “kynnti” þau svo hvoru öðru vissi Sindi að hún hefði eitthvað gott á Darcy á þessum tíma. Þannig að hún fékk hann til að kaupa á sig allskonar fín föt og skó og hótaði að segja frá kossinum ef hann gerði ekki það sem hún bað hann um. Þarna hafði Darcy hitt kvennkynsútgáfu af honum evil í gegn eins og hann. Penny grunaði að það væri eitthvað á milli þeirra tveggja og lét Darcy róa.

Seinna þegar Darcy var að reyna að vinna Dee aftur á sitt band og reyna að láta hana gleyma Toadie fékk hann Sindi til þess að hjálpa sér þar sem hún hafði farið illa með hann þá skuldaði hún honum greiða. Toadie var á þessum tíma niðurbrotinn og reiður út í Dee af því að hún hafði verið gift og aldrei sagt honum frá því og þar með fannst honum eins og hún hefði svikið hann. Dee og Toadie höfðu vegna þessa hætt saman en Dee var alltaf að reyna að fá hann til þess að hugsa skynsamlega og fá hann til að fyrirgefa sér. En Darcy sá til þess að þau væru reið út í hvort annað og til þess að tryggja það að þau tækju ekki ssman aftur fékk hann Sindi til að reyna við Toadie þegar hann var eitt sinn miður sín á pöbbnum. Toadie gleypti við þessu og þau byrjuðu að vera saman í tíma og ótíma. Í fyrstu fékk hún borgað frá Darcy til að gera þetta. Svo fór henni að líka mjög vel við hann og hélt áfram að hitta hann þó að hún fengi ekki borgað lengur frá Darcy. En Toadie hætti svo með henni þar sem hann var enþá ástfanginn af Dee, en þá var Sindi orðin meira en aðeins hrifin af honum. Svo vitum við öll hvernig fór milli Todie og Dee.

Sindi kom síðar aftur þegar Toadie og Tim vöntuðu nýjan ritara og Tim réði Sindi án hans vitundar. Hún var góð í sínu starfi. Toadie var samt ekki alveg ánægður að aafa hana þarna þar sem honum leið hálf vandræðalega í kringum hana. Svo loksins þegar hann var farinn að meta hana sem ritara þar sem hún var mjög góð þá hætti hún af því að henni var ljóst að hún væri ástfangin af honum og gæti því ekki verið í kringum hann. Þar með kom í ljós að þessi stelpa var ekki svo alslæm eins og leit út í upphafi.

Sindi er svo nýlega aftur komin inn í þættina þar sem hún er stjórnandi veruleikaþátts á stöð sem kærastinn hennar á. Þetta á eitthvað að vera í líkingu við The Block. Nema að hús þeirra sem þar búa er tekið í gegn, lagað breytt og endurnýjað. Scully fjölskyldan ákvað að taka þátt í þessu en þau eru alls ekki ánægð með það sem er að gerast á heimili þeirra. Toadie og Sindi hittast því oft á tíðum núna þar sem hún er að vinna í götunni . Hann er oft að gantast í henni og skilur ekki afhverju hún tekur öllu svona illa, en það má augljóslega sjá að hún er ennþá ástfangin af honum.

Ég trú því að þessi karakter fari í taugarnar á mörgum eins og mér þessa stundina en ég hef á tilfinningunni að það eigi eftir að breytast þar sem hæún á eftir að koma mikið meira inn í þættina. Þannig að voanandi heldur hún áfram að breytast eins og hún hefurgert í gegnum tíðina og verða alltaf meira þolanlegri.