Bar:
Hart,Bridget, Kat og David eru þarna, eins eru Vinny og vinir hans. Hart hendir biljarðkúlu í Vinny og Vinny tekur Hart hálstaki og heldur honum þangað til að hann verður blár og er næstum því búin að kafna. Þeir byrja að slást og endar með að eigandinn kemur og rekur þau út. Í portinu fyrir framan er Hart,Bridget, Kat og David að tala saman, Hart vill halda áfram að lemja hann. Svo fara Bridget og Hart en David og Kat verða eftir. Svo kemur Vinny og abbast upp á David og Kat, og ætlar að fara að ráðast á þau þegar eigandinn kemur út aftur.
Og rekur þá í burtu. Vinny segir að hann ætli að ráðast á David heima.

Fjallakofi:
Ed kemur og Roger tekur hann taki. Ed er náttúrulega forvitinn hvað Roger er að gera þarna og hann útskýrir Ed að Davis er þarna inni. Þeir plana það að ráðast á Davis. Hann er að reynda að nauðga Holly og eru þau inni í rúmi. Davis setur byssuna á rúmið og Holly reynir að gripa hana en Davis sér það. Michelle kemur inn og ætlar að fara. Davis varnar henni það og Holly dettur og Roger sér það. Roger nær að plata hann út á svalir og Ed stekkur svo niður á Davis sem hendist yfir og fellur niður. Ed heldur sér í og svo kemur Roger og hjálpar honum. Ed og Michelle keyra heim og tala um hve heppinn hann hefur verið og að Maureen vaki yfir þeim. Roger verður eftir hjá Holly.

Á veitingastað. (Tel að það sé staður Hamps)
Gilly kemur fínt klædd og segir Hamp að hún sé hætt hjá Roger og allt gott þar. Þau tala saman um sín mál og Kat og David. Svo spilar hann á saxafón “When I Fall in Love” (RÓMó) :)
Þau sofna og láta sér líða vel.

Boarding House.
David og Kat tala saman um atvikið og endar með að Kat sofnar en David fer en Kat vaknar og spyr hversvegna hann er að fara, hann segir henni að ekki hafa áhyggjur.

Jessup Farm. (Býlið)

Bridget fer heim með Hart og hún hjálpar honum og þau kyssast og kela. Hart vill meira en Bridget fer og Hart sofnar.
.