Country Club:
Nick kemur og kyssir Mindy, þau ætla að fara en Þá kemur HB, Billy yngri og Henry sem segja þeim að vera kjurr því að Billy eldri og Vanessa ætla að koma með tilkynningu. Nick og Billy ræða um hví hann er svo fúll út í Nick og hann segir sína meiningu.
Þau segja þeim þetta. Dylan tilkynnir trúlofun hans og Julie. Hart sér þetta og horfir þegjandi á.

Hjá Ed:
Bridget er að undirbúa hamborgara og ætlar að grilla með Ed. Hart kemur og spyr hvort hún vilji koma með í sund, hún vill vera heima með Ed. Hún eldar borgara en allt fer í köku og Ed kemur niður og segir henni að fara með Hart og hann er með föt og er að fara eitthvað. Hann er að fara út úr húsi þegar síminn hringir og hann fer upp á sjúkrahús.

Kofi upp í fjöllum:
Roger er enn þar og kom með flugelda, í tilefni 4. júlí. Hann spyr hvort hann eigi ekki að skjóta upp nokkrum. Michelle vill það en Holly er á móti því. En hún gefst upp fyrir rest, og leyfir honum það. Michelle fer inn og nær í flösku með hrísgrjónum og á meðan tala Roger og Holly um sig og líka um Jennu. Davis liggur undir kofanum. Þær horfa dáleiddar á flugeldana. Davis er að fikta í bílnum hans Rogers, þau eru öll farinn að sofa. . Holly lánar honum kodda, hann kemur sér fyrir en Davis kemur og ræðst á Holly.

Boarding House:
Dylan kemur og kyssir Julie. Hart kemur til Dylan og lætur hann hafa byggingarleyfið, og svo fer Dylan en segir Julie að koma í Country Club. Hart og Julie tala saman og Julie borgar Hart fyrir að hjálpa til.

Hús sem Billy keypti:
Hann sýnir Vanessu húsið og honum líst vel á en Vanessa er fúl því að hún var ekki með í ráðum. Hann segir hvað hann hafi alltaf dreymt um og loks gefur hún undan og samþykkir það. Hún segir honum að þetta geri hann ekki aftur nema spyrja hana.