Hér er það sem gerðist í leiðarljósinu okkar í dag.

Byrjar í veislunni hjá Billy og Vanessu.
Allir eru að fara og Mindy er að kveðja. Nick kemur og spyr hvar hún hafi verið hún segir honum það. Þau kyssast og Ed kemur og er að leita að pennanum sínum, finnur hann og fer. Þau halda áfram að kyssast og láta vel að öðru. Bridget er að fara að segja Julie um atvikið þegar Hart keyrði hana heim frá flugvellinum og Bridget varð tjúll.

Hart fær svo Bridget með sér og Dylan biður Julie. Hún rýkur í burtu grátandi og Dylan á eftir. Ed fær svo samtal frá Geðsjúkrahúsinu sem Eve er á og rýkur þangað.

Á geðdeildinni.
Eve er að hringja í Nick en hjúkka kemur inn og bannar henni það og hún verður brjáluð og segir að hún er ekki veik á geði og ætli að útskrifa sig. Hjúkka spyr hvort hún vilji horfa á mynd í sjónvarpinu en þá kemur hún með útskýringar því ætti hún að horfa á leiknar persónur. Svo kemur geðlæknir og ætlar að sprauta hana en Ed kemur og bjargar því. Hún stendur svo í dyrunum og heyrir allt. Ed talar við hana og róar hana. Hann fer og hún fer að sofa.

Heima hjá Hart:
Hart og Bridget tala saman um þetta og rífast smá.

Vitin – Heima hjá Mindy
Nick og Mindy kyssast og elskast fyrir utan því að Mindy finnur ekki húslykil. Hún finnur hann og fer inn og lætur renna í sturtu og fer í sturtu. Nick kemur og þau elskast og svo enda þau upp í rúmi.

Boarding House:
Julie er komin og Dylan líka. Þau tala saman og enda upp í bóli.
Hún hvíslar að honum Já og hann biður um að endurtaka það og hún gerir það.

Næsta Brúðkaup WOW 