Leiðarljós 4/2-2004

Hjá Mindy:
Billy og Vanessa eru að fara frá Mindy og Nick kemur inn, Billy er eitthvað fúll út í Nick, Billy og Vanessa ætla að labba um úti. Billy spyr hvort hún gæti passað Peter á meðan þau vilja vera 2 ein. Hún játar því, og segja að það gæti verið fínt þá fengi hún hugmyndir um barnafata línu. Þau fara en Nick verður hjá henni og Peter. Þau svæfa hann og svo tala þau um Billy hvað hann er kaldur í hans garð. Svo fara þau að kela og kyssast.

Hjá Vanessu:
Þau rífast og hún kallar hann öllum illum nöfnum. Sakar hann um að vernda Mindy of mikið en Billy vill að Mindy lendi ekki í ástarsorg og þess háttar. Hún hendir honum út og er reið. Svo bankar Billy og tala við hana gegnum dyrnar og svo fallast þau í faðma og sættast. Þegar hann er búin að taka loforð um að leyfa Mindy að lifa sínu lífi.

The Country Club:
Buzz fer með sendingu til þeirra og stendur í stappi við barþjónin um greiðslu. Hann sér Jennu koma inn og með henni eru 3 viðskiptamenn. Hún er að bíða eftir Roger sem ekki kemur og segir þeim að bíða hún ætli að reyna ná í Roger. Hún fer út og Buzz á eftir og hún lýsir tilfinningum sínum fyrir honum og svo verður hún reið og segir að hann getir ekki talað við sig vona. Hann segir að hún sé almennileg utanfrá en að innan er hún eins og kaldur klaki. Hún fer að gráta og svo fer hún að skrifa undir.

Hjá Holly:
Roger kemur og stendur í hurðinni. Holly hafði hringt í hann. Hann lýsir atvikinu þegar Hart var næstum búin að keyra hann niður. Hann segir hafa verið reiður út í hann. Áður fann hann sektarkennd og umhyggju en núna finnur hann til umhyggju. Holly segir sína skoðun og þau ræða um Jennu. Roger gerir samloku handa henni og Holly vill að Roger fari og ætlar að opna fyrir honum, en Holly kemur og kyssir hann, svo fer Roger.

Diner:
Nadine er að leita sér að vinnu og tala við Stavros og sér fréttina um giftinguna .
Svo kemur Buzz eftir lokun og heyrir eitthvað þrusk fram í eldhúsi, hann felur sig og handsamar Nadine og spyr hvað hún sé að gera þarna. Hún segir að hún vilji láta Frank og Elanie í friði. Buzz sér fréttina um giftinguna og leggur saman 2 og 2.