Sælt allt sápufólk :)

Nú í jólamánuðinum hefur verið svo mikið að gera hjá mér að ég hef ekki haft tíma til að skrifa um ljósið 12 og 15 föst og mán.

Hér er það sem gerðist í gær 16.

Hjá Billy Lewis:
Vanessa veit að Bridget er móður Peters, og hún þurfi ekki að skammast sín fyrir það.
Vanessa og Bridget tala saman um barnið, og önnu mál.
Hún segir frá sinni reynslu og vill hjálpa henni, hvetur hana til að skila barninu.
Kat og David koma svo með Peter en Bridget er ekki ánægð með það.

Kirkja:
Buzz er að biðjast fyrir og Billy situr aðeins frá.
Buzz og reynir að tala við hann, Billy segir Buzz að Peter sé horfin

Company:
Kat kemur niður í kjallara og sér David með Peter. David útskýrir og þau leysa málið og Kat hvetur hann til að fara með Peter til Billys aftur. Bridget er búin að blanda honum of mikið inn í þetta.


Heima hjá Nick:
Eve stendur á hleri og Nick og Mindy tala sama. Eve heyrir tal þeirra. Nick trúir Mindy loksins. Mindy fer svo og lofar að hringja í Nick þegar hún kemur.

Light House – Vitinn:

Eve kemur og felur sig inn í skáp og Mindy kemur á eftir. Mindy fer að sofa og Eve finnur skæri í töskunni sinni og fer að klippa hárið af Mindy. Hún vaknar og þær byrja að slást. Mindy nær að hringja í Nick. Mindy missir meðvitund og Eve bindur hana upp. Nick kemur og losar hana en Eve sprautar hann með svefnlyfi og segir að þetta eigi að róa hann. Ed kemur og finnur flöskuna og þetta var sama og Mindy var gefið á sýningunni sem hún hélt. Nick talar við Mindy og Ed fer upp á útsýnispall og ætlar að stökkva en Ed stoppar hana.

Cedars:
Lillian er að pakka inn gjöf og spyr Ed hvort hann hafði heyrt um trúlofun Nick og Eve, hann svarar því neitandi, hún setur svo pakka inni í skáp og þá sér hún giftingarkjólin og tekur hann út. Þá dettur út flaska og kassi sem innihélt meðalið sem Eve setti í vatnið hjá Mindy á sýningunni.