Búgarður Harts
Hann er að dreyma um Julie, Julie kemur og hann kyssir hana en hún biður um hjálp.

Skógur:
Kat og David og Julie og Dylan eru að skemmta sér og baða sig, Kat og David fara og Julie og Dylan veða eftir. Hann fer að klifra og dettur niður og brákar ökklann. Julie fer og sækir Hart. Hann keyrir þau á gistiheimilið.

5. stræti:
Nadine segir að Peter sé ekki sonur Billys, Billy verður frávita af reiði og vill ekkert með Nadine hafa. Hún grenjar utan í honum og biður hann um að taka sig í sátt. Hún ræðst svo á Vanessu og Billy kemur henni til varnar. Svo er Nadine farinn og Billy og Vanessa sitja og tala saman. Svo keyrir Billy í burtu með Vanessu.

Company:
Kat og David er að kyssast og elskast, Bridget er niður í kjallara með Peter. Hún kemur upp og biður David um greiða. Kat fer að sofa. Dylan Hart og Julie koma inn. David fer svo niður í kjallara og Bridget væri í honum að passa Peter, hann neitar í fyrstu en bara 1 nótt. Hann hvetur Bridget til að tala við Ed og að sannleikurinn er sagna bestur hún fer svo til Nadine.

Heima hjá Billy:
Nadine kemur heim og finnur barnapíuna sofandi. Hún ásakar hana fyrir að hafa skilið eftir opið. Hún rýkur upp og lítur eftir Peter kemur niður þegar hún finnur hann ekki. Öskar að hún finni ekki “barnið sitt” svo kemur Bridget og Nadine hellir sér yfir hana og segir því gengur þetta svona illa. Bridget segir að það hún hafi kallað þetta yfir sig.

The End.

Það var tími til kominn að Nadine fékk spark í rassinn frá Billy. Maður sér enn hvað hún er mikil frekja og vælukjói.

Sorry að það leið 2 dagar milli en það var smá tölvuvandræði :( En það er komið í lag :)