Nágrannar það sem að er búið að ske.... Jæja enn og aftur stóðst ég ekki að senda inn aðra grein um nágranna og það sem að er búið að gerast í þessari viku.

1. Shell, Connor, Nína, Taj, Lori og Jack fóru á ströndina í nokkra daga og Shell sagði Nínu að Taj eigi kærustu en hann sagði svo að það væri búið og ég held að þau séu saman, er samt ekki viss. Lori og Jack eru voða happy saman núna :)

2. Susan og Karl héldu gæsa og steggja partí á föstudaginn og gleymdu bæði heitunum sínum. Það gekk eitthvað mjög vel þar og allir skemmtu sér.

3. Joe fann þungunarpróf í ruslinu og það var jákvætt og endaði þátturinn að hann var að hringja í Shell að því að hann hélt að það væri hún sem að er ólétt, sem að ég skil ekki því að þau fá aldrei að vera saman hún og connor :S

4. Darcy og Cloey (eða hvað sem að hún heitir :S ) Hættu saman vegna þess að hún sá hann með Ben í afmælinu hans og hún vissi að hann myndi einhvern tímann vilja barn en hún er búin með þann kafla í lífinu, sagði hún.

5. Dee er núna að vinna Cookie í þessu kynferðisáreitnis máli eftir að Darcy tók upp þegar Cookie játaði þessu.

6. Flick er í USA og Stu er alveg að brjálast og vonum bara að hann geri enga vitleysu. Hann er eitthvað núna að bulla að hún sé með einhverjum gaur þarna sem að svaraði í símann hennar, en ég veit ekki hvernig það mál fer.

7. Lou er núna í hættu á að deyja og liggur á spítanum, ég veit ekki heldur hvernig það mál fer :S En ég er komin reyndar með ógeð af honum svo mér er alveg sama hvað hann gerir.

8. Boyd er nú orðin góður vinur Daniels sem að er vinsælasti strákurinn á þeirra aldri og “hanga” þeir núna alltaf saman. Það er eitthvað að ganga og ekki ganga með hann og stelpuna sem að ég man ekki hvað heitir.

9. Summer var nú á sjúkrahúsi vegna veikindanna þarna þegar það líður alltaf yfir hana. Hún pirrar mig enn mjög mikið!

éG held að þetta sé komið annars bara sry þetta er það sem að ég man í augnablikinu :S

Well takk fyrir að lesa.

Kv. Sóley