Hér er það sem gerðist í dag.

Hann byrjar á því að fréttin um H.B er í öllum fjölmiðlun.

Hjá Mindy:
Hún er að hlusta á fréttir og Nick kemur og talar við hana. Þau ræða þetta mál og H.B. Nick keyrir hana svo til Vanessu.

Diner:
Harley er að fara að vinna þar. Elanie og Harley fara að tala um pabba sinn. David kemur inn og hringir í Roger út af Gilly. En nær ekki á honum Rex kemur svo og Mallet á eftir.

Spaulding Ent:
Roger er að tala við Rex og hann borgar honum fyrir upplýsingarnar, Hamp kemur og fer að rífast við Roger, Gilly heyrir þetta segir við hann að ekki skipta sér af þessu en hamp rýkur út. Gilly ætlar að fara en Roger kallar á eftir henni að ekki fara.

Hjá Billy L:
Nadine talar við Billy og Mallet kemur svo og vill forvitnast um Rex og hún segir hvað hún veit, “svona” Hún hringir svo í Rex og segir að koma strax og hann kemur bakdyramegin. Hún segir að Mallet gruni eitthvað svo hún vill að hann komi sér úr bænum.

Hjá Vanessu:
Billy er þar með H.B Billy yngri og Vanessa og Henry. H.B hafði gist hjá þeim, Mindy kemur og Nick og Billy fara út og gefa út yfirlýsingu. Mindy fer upp og leitar að afa sínum. Kemur niður og spyr um hann. Hann er farinn.

Hjá Gilly og Hamp:
Gilly er að skoða hljóðfæri Hamps David kemur inn og ræðir við hana. Hamp kemur svo og segir henni að hún hafi um 2 að velja.
Hætta hjá Roger eða hann fari.
Hún velur það að vinna áfram hjá Roger og Hamp fer.

—-

Eru ekki margir sem horfa á þetta. Væri gaman að fá skoðanir og umræður ekki bara endursögn. Hélt að þetta áhugamál væri til þess.