Þátturinn í dag snerist að mestu leyti um H.B. en hér kemur það sem gerðist.

Country Club:
Allir eru undrandi á þessum ásökunum. Vanessa kemur inn á baðherbergið og sér þar Eve. Hún segir við Mindy að fara fram og les Eve pistilinn. Gilly heldur áfram að koma með ásakanir og H.B fer að gráta. Kat og David koma og David fer að tala við Gilly um þetta og önnur persónuleg mál. Roger og Rex glotta. Fletcher ásakar Roger en hann snýr út úr, og Dylan er hvass við Hart. Allir eru að reyna að hughreysta H.B.

Kvennaklóset (Country Club)
Nadine ræðst á Rex með ásökunum að hvað hann hefur gert, og Buzz reynir að afsaka sig og segir að hann vissi ekki hvað Roger mundi gera með þetta plagg. Nadine kemst að því að Roger standi á bakið þetta allt.

Allir eru farnir og Rex viðurkennir að það var hann sem sagði þetta.

Heima hjá Roger/Jennu:
Hún er að tala í síman við Grady og vill láta njósna um Blake. Roger kemur og hann segir henni allt það létta. Hart kemur og er með ásakanir á hendur Roger að þetta er það sem hann vilji að hann komi til hans aftur. Hann segir honum að frekar vill hann vinna hjá H.B og Billy en hjá honum.

Heima hjá Gilly og Hamp.
Gilly kemur heim og Hamp kemur fram og spyr hversvegna hún gerði þetta. Hún segir að Roger hafi þvingað hana til þess annars mundi hann segja frá fortíð. Hún fer að sofa og Hamp segir þá sefuru ein. Hann stendur og horfir út um gluggann.

Heima hjá Billy Lewis:
Allir koma heim og ræða um þetta mál, H.B segir sögu sína og hvernig Lewis oil byrjaði Nadine kemur og H.B gistir hjá Vanessu, og Billy j.r og Henry.

Hjá Nick:
Hann kemur heim og kallar á Eve og segir að það þýðir ekki að þykjast vera heima hann sá hana.

Cedars-spítali.
Eve kemur inn og hittir einn lækni og segir að hún nenni ekki að láta vita að hún sé þarna. Hún klæðir sig inn í lak og sofna