Sælir allir og afsakið það að ekki hefur verið skrifað um leiðarljós í síðustu viku. Ástæðan eins og allir vita voru 2-3 vanþroskaðir hugar-ar sem gera ekkert nema eyðileggja fyrir öðrum.

En nóg með það:
Nú er maður úthvíldur og hér kemur það sem gerðist í þættinum í dag. Reyndar snérist hann svo til um útnefningu H.B en samt gaman að honum.
—-

Hjá Nick og Eve:
Nick er að taka sig til og er að fara sem blaðamaður í veisluna hjá H.B. Eve vill koma með en Nick segir nei. Hann reynir að tala um fyrir henni og segir að það sé gott ef þau tvö væru frá hvort öðru í smá tíma, svo hringir síminn og Fletcher er og spyr hana um Nick. Hún skellir á hann og þykist tala í hann og svo þarf hún að rjúka upp á spitala. Segir honum það. En hún er að ljúga.

Veitingastaður á hóteli:
Harley og Mallet eru að snæða og þau ræða sín mál. Mallet sýnir yfirþjóninum mynd af Randí og spyr hvort hann eða einhver annar hafi séð hana, Harley talar um það að hún sé hætt að hugsa um föður sinn. Svo þegar þau fara segir yfirþj. við Mallet að hún hafi verið þarna og komið nokkrum vikum á eftir Rez Manchini a.k.a Buzz Cooper.

Hótel Herbergi:
Rex er að leggja kapal og Roger kemur og Rex lætur hann fá upplýsingar og þeir rífast um greiðslu. Roger fer og svo pantar Rex smóking og fer í veisluna.

Hjá Billy.
Það er glaumur og gleði allir skemmta sér nema Bridget sem situr heima með Peter og Julie og Dylan koma svo fara allir í Country Club-inn. Bridget talar um fyrir Peter að hún ætli að fara að segja Hart þetta og allt verði í fínu lagi.

The Country Club.
Þar er margt um manninn og allir eru að skemmta sér. H.B kemur og honum er heilsað af fylkistjóra og hann ræðir við vini og kunningja. Fylkisstj. , Billy og Hamp flytja ræðu. Á meðan er Roger með hótanir við Gilly að hún eigi að sannreyna þetta við H.B sem hann er með. Hún neitar en hann þrýstir á hana. Mindy fer á klósettið og hittir þar GIlly hún er leið á svip og fer. Eve kemur inn í salinn og Fletcher sér það og lætur Nick vita. Hann segir honum undan og ofan af vandamálum sínum með Eve. Nick fer að leita að Eve og svo sér maður hana koma inn á klósett. Mindy verður hennar ekki var vegna þess að hún er að leita að varalit. Svo bera fjölmiðlar fram spurningar, og Gilly spyr hann hvort það sér rétt að hann hafi setið í fangelsi. Í lokin sér maður Roger og Rex glotta.
—-

Hvað er eiginlega að gerast með Eve ? Er hún svona öfundsjúk í Mindy eða ?

Og verður gaman að sjá hvað gerist á morgun eftir þessa uppgvötun.