Ég gat ekki staðist það að skrifa eitthvað um nágranna þar sem að ég leit á greinarnar og allar voru um leiðarljós og mér fannst það sorglegt, þið verðið að fyrirgefa það. Ég verð þess vegna að skrifa það sem að er að ske núna í nágrönnum fyrir ykkur greyin sem að eru búin að missa af og ég vona að einhver verði jafn góður því að ég er að fara burt og vil ekki missa af, en hvað um það þá byrja ég.

Flick og Stu hafa nú verið lítið í þáttunum eftir þetta slys og þau komu síðast þegar Flick sagði Stu að hún ætlaði að fara til NY þótt að Shell færi ekki.

Darcy og Cloe (er ekki að kunna að skrifa það) eru nú í einhverjum sambandserfileikum núna og Jordan dóttir hennar er eitthvað ekki sátt við Darcy og laug að mömmu sinni að hann hafi reynt við hana og það er allt brjálað út af því.

Dee og Toadie eru í kynferðismálinu með Cookie og hann er ekki að skilja að hann reyndi að kyssa hana og neitar öllu og er að gera mig alveg brjálaða.

Steph og Max eru nú eitthvað byrjuð að dúlla sér eitthvað saman en neita því bæði, gaman að sjá það þróast.

Shell er eitthvað að spyrja foreldra sína hvort að hún og Connor mega ekki gista í sama herbergi, og ég veit ekki ástæðuna af hverju þau mega það ekki.

Karl og Susan er núna búin að ákveða að giftast aftur og allt í góðu hjá þeim.

Boyd er í einhverjum vandræðum í ksólanum og með stelpur og hætti með kærustunni sinni. Margt að gerast þar.

Summer er enn emð það að á heilanum að ´koma fólki saman og bjarga málunum, bara pirrandi.

Lori og Jack eru komin í bæinn og munu vera en Lyn er eitthvað greinilega ósátt við það miðað við hvernig þátturinn í dag endaði.


En meira man ég ekki í bili svo ég segi bara: lifi nágrannar á sápum og klikkaðu bara á mig ef að það er eitthvað sem að þú vilt segja.

Kv. Sóley.