Það gerðist nú lítið en fyrir ykkur sem ekki sáuð…

Heima hjá Ed
Ed og Holly voru að tala saman og hann að segja henni hve abbó hann væri vegna þess að michelle hefði gert hana að trúnaðarvini sínum en ekki sig. Holly reynir að gera lítið úr þessu en án árangurs. Bill hringir.

Heima hjá Vanessu
Bill labbar fram hjá mömmu sinni með samloku, henni finnst það grunsamlegt og eltir hann svo lítið beri á. Hún finnur því michelle í geymslunni með megalitlu dyrunum (hvurslags dyr eru þetta eiginlega? það er nú ekkert á færi allra að komast þarna inn!). Vanessa sendir bill að hringja í Ed og láta hann vita að michelle sé fundin. Þær ræða saman á meðan og michelle segir að hún geti ekki umgengist vanessu því hún minni hana svo mikið á mömmu sína. Ed kemur og ætlar með hana heim en hun harðneitar að fara heim með honum, vill einungis fara með Holly. Ed fellst á það og michelle trúir holly fyrir því að hún haldi að ed hafi drepið mömmu sína (auminginn ekki að furða að henni líði illa).

San Jose
Harley að villa á sér heimildir. Löggan þar fattar það og hringir til Springfield. Endar með því að Harley stelst í gögnin og finnur last known adress fyrir Buzz…

Löggustöðin
AC reynir að sannfæra Frank um að hann ætli sko ekkert á eftir Harley og að hún muni skila sér…gengur samt eitthvað illa hjá hjá honum. Levy (syngjandi “I´m getting on a plane to San Jose” bara FYNDIÐ) kemur og segir honum frá símtalinu sem hann fékk frá San Jose. Þeir félagar AC og Frank stökkva því af stað til SAn Jose.

Þá er það bara komið (minnir mig).