Ed-hús
Ed er að taka til nesti fyrir Michelle og Nick kemur inn og spyr hvort Eve sé að vinna. Þeir tala um Eve og Mindy og eins ræða þau um Maureen.

Hjá Billy Lewis:
Roger kemur stormandi inn og spyrt Hart afhverju hann tók vinnuna hjá Billy og ásakar hann um að vera að ræna syni sínum og grafa undan sér. Buzz kemur Randý heim í leigubíl. Hart stendur upp í hárinu á Roger og lætur hann heyra það og segir líka að Billy hafi bjargað sér frá fangelsi þegar hann var að taka fé úr kassanum á veitingastaðnum.
Buzz keyrir Hart heim.
Bridget fer upp með Peter og svo kemur Nadine og þær spjalla saman um málin og hún spyr hvort hún mætti fara út og Nadine segir ekki málið.
Roger og Billy rífast um hvað Billy er búin að taka marga viðskiptavini frá honum, en Billy kemst á snoðir um það að Roger hafi haft njósnara.

Nadine vill hafa sex með Billy en Billy er ekki í stuði út af Roger. Hart og Bridget koma inn og Hart gistir hjá þeim.

Hesthús:
Hart situr og er að brýna exi. og Bridget kemur og þau tala um atvikið og Hart segir að hann var farinn að sjá þegar hann frétti að Roger væri pabbi sinn. Bridget segir að hann geti ekki verið hérna og segir við hann að koma með sér heim. Þau fara .

Towers – Veitingastaðurinn:
Eve kemur inn og vill tala við Mindy, Mindy vill ekkert með hana að hafa, Mindy fer að leggja á borð og Eve “hjálpar” henni og Mindy segir að hún sé ekki hrifin af Nick og er að vinna allt upp í 18 tíma svo hún hafi ekki áhuga fyrir kynnum. Eve fer að espa Mindy upp og tala um það Nick geti gefið henni heilbrigt barn en Mindy geti ekki borið barn undir belti v/ 2. fósturmissis. (Það var það sem Eve sá í skýrslunni sem hún náði í hjá Ed)
Mindy verður svo reið að hún hendir disk í Eve og hleypur í burtu. Hamp kemur og býður Eve í glas og segir að hún eigi borð næst þegar hún kemur. Hún fer svo. Roger kemur og er reiður við Hamp og segir að hann hafði stuðlað að Hart vinnur hjá Lewis en ekki honum. Hamp tekur fyrir það og segir að það er Billy að þakka að sonur hans sé ekki í fangelsi. Hann ræðir líka um það að Gilly vinni of mikið.
Mindy er grátandi niður í bílageymslu og talar við sjálfan sig hversvegna hún lætur hana alltaf koma sér í uppnám. Skuggi birtist og svo sér maður Eve með skóflu.
=======================================
HMMMM MMMMMMM
Hvað gerist á morgun
HMMMMMMMMMMMMMM

Þarna sýnir það að Eve er geðveik, og vill losna við Mindy.
Eins það að Hart lét pabba sinn heyra það.