Hér kemur ein löng ein. Gerist mest á veitingastaðnum 2 towers eða hvað hann heitir.

Heima hjá Billy)
Nadine er fúl út í Billy að hafa boðið Rex og Randy í mat. Hún vill að þau ætti kvöldstund saman. Nadine og Billy tala saman og Bridget kemur inn og er leið yfir Hart. Hart kemur og skilar Billy úrinu hans sem hann gleymdi. Hart fer fram og Nadine segir Bridget að þrauka. Svo býður Nadine Hart í mat. Rex og Randy pískrast saman og Hart talar við Bridget og þakkar henni fyrir það sem hún gerði þegar hún varði hann á veitingastaðnum (TOWERS). Billy er að sýna Peter og Roger kemur og vill tala við Billy og sér Hart og spyr hvað hann sé að gera þarna.

(Tower)
Nick er að reyna að fá Fletcher í vinnu á blaðinu. Jenna kemur stormandi inn með Roger í eftirdragi. Roger segir að Nick og Alan Michael hafi blekkt hana. Nick og Fletcher tala saman. Mindy kemur inn of Nick sér hana. Roger sér teikningar af kjólum og líst vel á einn og segir Jennu að Mindy vilji tala við hana. Jenna sest og talar við Nick og Fletcher og svo kemur Roger og hún fer að tala við Mindy en Roger við þá.

Gilly kemur öskuill inn og skammar Hamp yfir það að rafvirki sem átti að koma kom ekki. Hamp dregur upp úr henni að þetta sé vegna þess að Nick og hún rifust. Roger kemur og segir henni að gera lista yfir staðgengla Nick. Roger bendir Jennu á kjólana en hún vill ekki ræða um þá heldur um Spaulding. Hún spyr hvað ergir hann en hann vill bara tala um þetta heima. Hún tekur kreditkortið af Roger og rýkur út. Nick kallar á Mindy og vill tala við hana og gerir það. Hann spyr hvernig gengur og hún segir allt í fínu, og að núna þekkir hann hana. Þessa gömlu og góðu. Hún spyr Nick hvernig hann hefur það og hann segir bara gott. Hættur hjá WSPR og byrjaður að vinna á blaðinu. Vill ekki hafa Roger hangandi yfir sér.

Eve kemur sér Mindy og Nick og fer svo aftur. Dylan er að tala við pabba sinn og hann er að bjóða honum og Julie í mat. Roger talar við Julie og segir að Hart sé í bænum og vildi bara láta hana vita og biðja hana um að koma því til skila að hann er að bjóða Hart vinnu. Hún segir að hann vinni fyrir Billy Lewis.

Fletcher langar til að byrja aftur á blaðinu. Eve kemur og vill tala við Mindy.


(ED-s hús)
Eve er að skrifa miða til Ed um að hugsa málið um þetta með útprentunina. Hún gramsar í skjala tösku Ed og sér skrá yfir Mindy. Hann vill gefa henni eitt tækifæri til viðbótar.
Holly og Michelle tala saman og þau ræða um að nú sé hún fullorð kona og svona. Michelle dregur upp umslag sem Maureen skrifaði og átti að opnast þegar hún byrjaði á blæðingum, hún les það og fer að gráta. Holly fer niður og segir Ed að hún sé byrjuð á blæðingum. Ed verður ráðalaus því að hann saknar Maureen líka og segir að hún hafi alltaf verið hjá honum til að leiðbeina honum. Hann fer upp til Michelle og talar við hana og segir hve mikið hann elski hana og svona.

(Heima hjá Roger)

Roger er að reyna afsaka sig en Jenna tekur því fálega. Hann fer út og Jenna fer að gramsa í skúfunum hjá honum. Hann finnur bréf til Holly frá honum og svo fer hún að punta sig og er á leið út á djammið.

Hvað gerist næst.

Roger brá að sjá Hart þarna.
Er Eve geðveik. Ég tel það.
Gaman verður að sjá á mánudaginn.

L8ter all.