Vinnusvæði hjá Lewis Oil.
Hart er að vinna og Dylan líka. Billy kemur og skoðar og Dylan nefnir við hann að það sé gallaðir hlutir. Dylan var búin að skrifa bréf og ætlaði að senda en Billy sagði bara hringja og vera harður. Hart kemur þá með það að afi sinn hafi gert það þegar vél bilaði og hann fékk nýja og afslátt. Svo sér Hart úrið hans Billy’s og tekur það. Síminn hringir og það er Julie.

Veitingastaður:
Michelle og Ed og Holly sitja að snæðingi og Roger fylgist með, Blake kemur inn og tala við Roger og hann býður henni vinnu. Michelle fer á klósettið og Holly fer að athuga með hana. Það kemur í ljós að Michelle er að byrja á blæðingum og er hrædd. Vill ekki segja pabba sínum það. Blake hittir svo Ross. Roger og Jenna tala um Ed og Holly og Michelle Jenna hittir Roger og talar við hann um ráðningar og segir honum fréttirnar og hann bregst illa við en Jenna segist geta gert þetta sjálf og rýkur í burtu og Roger eftir.
Michelle, Ed og Holly fara svo heim.

Spaulding setur:
Jenna er að skoða húsið og vill hafa húsgögnin og hlutina en Alan Michael kemur og segir að það hafi bara verið húsið ekki hlutirnir. Þau rífast en Nick kemur inn og talar við A.M um að best er að láta eftir þó að A.M fari að rifja upp minningar þá segir hann að hann verði að halda áfram sínu striki, og A.M samþykkir það.

Heima hjá Billy.
Buzz er í felum inni í eldhúsi hjá Nadine á meðan kærasta Buzz er að suða um að hann sé þarna og hvar hann sé. Nadine neitar þessu og þá hótar Randy að hringja í lögregluna þá fer hún fram og dregur hann fram og Randy gefur honum einn á lúðurinn. Hún vill að þau fari og Nadine býðst til að borga fyrir þau hótel og svol. Billy kemur inn og spyr hver þetta sé. Nadine kynnir þá að Randý sé kona Buzz. Billy bíður þeim í mat, og þau fara.

Ferðalag hjá Frank og Elanie:
Frank og Elanie eru í fríi og vinna í sínum málum. Skilnaður við A.M og þess háttar, Elanie er að pakka því hún er hrædd um að týna þeim. (Pappírunum sko) . Frank biður hennar aftur og fer með hjúskaparorðin, og lætur hana hafa demantshring.

Hér er það sem gerðist. Þið verðið að afsaka að ekki kom neitt í gær vegna tölvuvandræða og fl. :(

En það er komið í lag.