Enn og aftur ætla ég að reyna að lífga upp á nágrannahliðina á þessu áhugumáli og skrifa eina litla grein sem að ég kalla :nágrannar-sambönd og ætla að fjalla um samböndin í nágrönnum þessa dagana.

Shell og Connor - Þau voru að hætta saman út af Tahnee kom með lagið sem að Nína samdi og sýndi Shell og þá sá hún að það væri um Connor og hvað hún elskaði hann. Bæði Connor og Nína reyndu að segja henni að eþtta væri ekki neitt og er Connor mjög sár yfir þessu og skrifaði bréf til hennar. Kemur í ljós á morgun hvað stendur í því (vonandi).

Flick og Stuart - Þau eru svona nýbyrjuð saman og allt voða skemmtielgt og svona. Þau ætluðu að dúllast eitthvað í lúxússvítunni á Lambertshótelinu (minnir að það sé skrifað svona) en Cloey hlustaði á Flick tala í síman og Flick hélt að það væri Toadie og var næstum búin að láta reka sig!

Cloey og Darcy - Þau eru eitthvað byrjuð saman og eru í leynduástarsambandi :d gott hjá þeim!

Susan og Karl - Þau eru eitthvað byrjuð að vera saman. Þótt að hún segist ekk ivera tilbúin alveg strax og er Karl núna á læknaráðstenfu einhverstaðar, man ekki hvar.

Svo eru það náttla hjónin Scully og svona!

Vona að þetta hafi hjálpað ykkur að rifja upp og svona og ég var að lifga upp á áhugumálið svona aðeins :D

Takk fyrir mig.