Missti af þættinum í gær þannig að ef einhver sá hann þá væri gaman að fá svona “brief” hvað gerðist :)

En hér er ljósið okkar í dag.

(Hjá Mindy)
Mindy er að taka til og undirbúa partý, Dylan kemur og ræðir um nóttina hjá Nick, Billy eldri kemur og talar við Mindy um þau mál. Nick hefur þá komið til Billy á Lewis Oil og rætt við hann um að hann (Nick) hafi áhyggjur af Mindy en Billy segir honum að ekki hafa áhyggjur og sinna Eve. Svo fer Billy og Mindy.

(Á spítalanum)
Alan Michael er með Blake og er að reyna að komast inn á skrifstofu til að sjá hvort hann eigi barnið eða ekki. Hann hittir Lillian og hann spyr hana um Ed og Ed segir við Blake að Ross hafi verið að spyrja um hana í alla nótt.. A.M spyr svo um gögnin. Lillian athugar málið. Ed og A.M tala saman um þetta og svo fær hann að sjá að Frank á barnið en ekki hann. (THE TRUTH HURTS). Svo ræða Ed og Lillian um sín mál og að Lillian er að fara í leyfi til Parísar.

(Gistiheimilið)
Julie og Bridget rífast um Hart og Hart og Bridget fara svo. Nick og Eve koma, Eve útskýrir fyrir Nick afhverju hún þurfti að fara þegar hann var í sturtu. Svo tala þau um Mindy og um hvort þau ættu að fara í partýið. Dylan og Julie tala saman um sín mál.

(Skrifstofa Ross.)
Elanie er þarna og fyllir út skilnaðarpappíra Blake kemur og smjaðrar við Elanie að ekki segja Ross þetta. Og svo tala þau saman, og Elanie lofar að ekki tala við Ross um þetta ef A.M skrifi undir pappírana. Svo fer Elanie og Blake er ein eftir með ritara. Ross hringir og vill tala við Blake.

(Snekkja A.M)
A.M stendur og er leiður og sár, Elanie kemur og réttir honum skilnaðar pappíra. A.M reynir að mýkja hana upp og rifja upp gamla tíma en Elanie gefur sig ekki.

The END.

Nú verður fróðlegt að sjá hvað gerist.
Mun Alan Michael skrifa undir ?
eða þarf Elanie að höfða mál á hendur A.M og hvað gerist með Ross og Blake ?
Nýr þáttur á morgun.