Vegna fjölda áskoranna ætla ég að skrifa um þættina síðustu daga, hvað hefur skeð og hver hefur gert hvað. Vonandi mun þetta koma eitthverjum aftur inní Nágranna-heiminn.

Mamma og Pabbi Toadie - The Ugly People >:)

Mamma og pabbi Toadie komu inní þættina fyrir 2-3 vikum fannst mér þau vera leiðinleg frá degi nr.1, ég veit ekki afhverju. Þau hafa alltaf verið að rífast, og eru þau bæði bara ófríð. Pabbi hans Toadie stakk af en kom svo aftur og það sama gerði mamma hans. Pabbinn vann eitthverjar milljónir í Lottói og keyptu þau sér eitthvern risastórann bíl fyrir hann. Þau fóru úr þáttunum í dag, gleðidagur fyrir mig :)


Scully-fólkið, Flick og Chooka og Valda

Michelle er að fara til Bandaríkjanna og er búin að vera lítið með Connor. Connor er búinn að vera mikið með Nínu og er Michelle farið að gruna eitthvað. Nina kemur fram í útvarpsþættinum hans Toadie og segist vera sú sem söng lagið fræga þegar Tahni ætlaði að fara að ræna því og segjast eiga það. Michelle fær þá að vita leyndarmál Connor´s og Ninu og segir Connor til syndanna. Hún fer eftir nokkra þætti til BNA að ég held. Felicity og Chooka eru byrjuð saman. Hún vinnur eins og áður hjá Lassiters og hann er byrjaður að vinna bæði sjálfstætt og hjá Lassiters sem Limmódriver, hann vinnur líka á verkstæðinu. Undarfarnar vikur hefur Scully-fólkið fengið pakka senda til sín og vissu þau ekkert hver sendi. En núna kom það í ljós, það var Valda. Þessu kjélling er að koma aftur.


Harold -

Harold er verulega einmanna maður, Rosie vill ekki vera með honum, Lou hefur snúið baki við honum og loka ráð Harolds er að ganga í misskilda stefnumóta þjónustu. Það kom kona til hans um daginn og tók af honum myndband, en ekki fannst henni það ganga vel. Í dag tók Susan upp annað myndband og var það bara asnalegt. Í myndbandinu talar hann eins og eitthver P1mP og segjist ætla að rasskella dömurnar, kommon, þessi maður er 60 ára eða eitthvað ;l ;o


Ég vona að þetta hafi eitthvað skýrt veginn að Nágrönnum

Takk fyrir,
Hrannar M.