Þetta er það sem gerðist í dag:

Billy er að gæla og tala við Peter son Bridgetar en tekur það sem svo að hann og Nadine eigi það. Bridget kemur inn og spyr hvort hún eigi að fara með hann upp en nei þá þarf hann að fá pelann sinn. Svo kemur Nadine niður og er að monta sig að barninu og BIll hvað hann er góður pabbi.. Á meðan Billy er að útbúa pelann þá sýnir Nadine henni einstakl. íbúðir og vill fá hana út. Hún ræði við Bridget um hvað hún vill. Svo fer hún út og þegar BIlly er að hita anna pela þá hringir Buzz og biður um vinnu hjá Lewis.

Dylan og Hart tala saman og þeir ræða um gömul mál. Julie kemur niður og Hart sér að hún er með Dylan og verður reiður og reynir að fá hana með sér en úti á verönd þá sleppir hann henni og rýkur út. Julie fer upp á herbergi og Dylan með henni, hann ætlar svo að fara að eftir Hart en svo snýr hann við þau enda í faðmlögum upp í rúmmi.

Ross og Blake eru að borða og Ross er að skoða Spauldingmálið. Hún fer að gera honum lífið leitt og þau rífast og hún reyndir að réttlæta gjörðir sínar, en hann tekur því fálega.

Gilly heimsækir Holly og gefur henni gjöf frá sjónvarpsstöðinni sem er gullúr. Hún tekur því fálega og vill fá vinnu Gillyar.

Jenna kemst úr fangi Buzz en hann er ekki á þeim buxunum að sleppa henni. Hún stappar á tánum á honum og þegar hann reynir aftur þá hrindir hann honum á rúmstólpan. Svo hringir hún í Room Serice og biður um kaffi. Hann biður hana að sýna sér hvernig meistaraþjófur fer að. Þau sjást svo leika með bolla og sykurmola.
Buzz hringir svo í Nadine og biður um vinnu hjá Lewis Oil.


Meira á mánudag 29/9.
Þetta er farið að verða fróðlegra og fróðlegra. Hvað gerist næst, mig langar nú að fá að vita hvað er að gerast í dómsmálinu og Frank og Elanie.