Svosem ekkert merkilegt sem gerðist þannig lagað. Amber er að halda þetta útskriftarpartý fyrir Rick, allt voða flott. Kimberly kom sem daman hans CJ og svo sér Rick bara aftan á hana, hún var í bikinium, og var að tala við CJ um hver þetta gæti verið og CJ sagði þetta vera Kimberly, hans dama. Grunar að hjartað í Rick hafi tekið nokkur heljarstökk þarna.
Brooke er voða mikið að hugsa um Thorne, sem er trúlofaður Macy. Taylor togaði það útúr Brooke að hún væri að spá í einhverjum og sagði henni að go for it. Hún veit ekki að það er Thorne sem hún er að spá í.
Amber hringir í mömmu sína og biður hana að koma í partýið. Á þeim tíma er Becky, mamma barnsins, í heimsókn hjá mömmu hennar og hún vill fá að tala við Amber. Amber er voða stressuð í símanum. Becky veit ekki að Amber fékk barnið hennar en síðar í þættinum sagði hún mömmu sinni og mömmu Amber að hún hefði litið á drenginn sinn þegar hann fæddist og hún skildi aldrei gleyma hvernig hann leit út. Hún man eftir hjartalaga fæðingarblett á rasskinninni. Mamma Amber skildi eftir myndir af Amber, Rick og barninu og bað mömmu Becky um að útbúa myndaalbúm undir myndirnar.

Ætli Becky eigi ekki eftir að kannast við barnið á myndunum????
Allavega efast ég um að þetta drama með barnið sé búið… eða hvað haldið þið??