Þátturinn byrjar í Malasíu þar sem Elani og Ann-Lei eru á leið til Franks. Fletcher og Frank fara mannavillt, konan sem þeir sáu í gær var ekki Alexandra. Þeir ræða við þessa konu og hún þekkir ekki hana, en Fletcher sér einn mann með eina af eyrnalokkum Alex og ræðst á hann og spyr hvar hann fékk hann, hann segir að rík kona hefur borgað sér fyrir að ferðast til Samutra. Elaini kemur til sama bars nokkru seinna og sér þessa erlendu og fer mannavillt eins og Frank og Fletcher. Hún fær að vita að það- er flugbraut stutt frá og þeir eru þar og Elanie rýkur af stað.

Alan Micael og Nick eru að ræða saman um Bettsy ritara afa A.M (Brandon) þeir kíkja inn í skjöl og tölvu og finna hana loks og hringja til hennar, og hún ætlar að hringja aftur í þá til að þeir geti hitt hana í Washington. Svo ræða þeir saman um Alexöndru og fyrirtækið og samband Fletcher við Alex. milli Fletcher og Alex og Mindy og Nick og Dr. Guthrich. Og samband Nick við Mindy og Eve (lækni)

Harly og Mallet eru að ræða um að gifta sig og Harly er óákveðin vill bíða í nokkra mánuði en Mallet vill gifta sig á Valentínusardaginn. Þau fresta öllu til sumars.

Bridget kom til baka þangað sem hún stakk af til. (Man ekki hvað það hét), David og Bridget tala saman, hún biður hann um peninga og svo fer fæðing hjá Bridget afstað.

Buzz kemur til Nadine og slær henni gullhamra, Nadine vill ekki trúa þessu og reynir að losna við hann. Það gengur ílla og endar svo með því að hann segir að hann sé Frank Akelis Cooper en kallaður Buzz, og Nadine bregður.

Frank og Fletcher eru úti á flugvelli og eru að bíða eftir flug vél og hún kemur en þá heyrir Frank kallað á sig og Elanie kemur hlaupandi til hans. Fletcher fer með flugvélinni en Frank verður eftir og tekur á móti Elanie sem fellur í dá í höndum Franks.

The- End.

Eftir að hafa horft á þessa þætti þá tel ég að Alex finnst og Frank og Elanie verða saman.

Meira á morgun 18/9