Það var margt sem gerðist í þættinum þann 11 sept.
Ég kom inní þar sem pabbi Harley og Frank var eitthvað að tala við kærustuna sína, hún var svo mikið að spyrja hann útí þetta fyrrverandi eiginkonu og börn dæmi. Pabbi þeirra er bara fyllibytta og býr þarna með einhverri algerri… sko ég á ekki einu sinni orð yfir það :) Seinna í þættinum kemst hann yfir símanúmerið hjá Nadine og hringir þangað en Michelle svarar og hann þykist vera gamall vinur sem vill bjóða henni í brúðkaup dóttur sinna en hann vill ekkert að hún kalli á Nadine þannig að hún segir honum heimilisföngin og símann heima og hjá Lewis olíufyrirtækinu, þá svelgist kallinum rosalega á, datt sennilega ekki í hug að hans fyrrverandi væri vellauðug.

Michelle býr ennþá á háaloftinu hjá Nadine en langaði að fara en Nadine sannfærði hana um að verra kyrr. Vinkona hennar, þessi svarta sem ég man ekki hvað heitir, kom þangað og var að leita að henni og sagðist sakna hennar mikið.

Harley fékk martröð um pabba sinn um nóttina og Mallet er nú aðeins farinn að geta staulast um án þess að nota hækjuna.

Eleini var staðráðin í að finna Frank og segja honum að hann ætti barnið en það var fullt í allar vélar. Þá hittir hún mann sem flýgur cargo og eftir mikla sannfæringu þá ákveður hann að fljúga með hana til Singapúr þar sem hún getur hitt Frank og sagt honum allt af létta. Hún bíður manninum giftingarhringinn sinn, sem er rándýr. (býst allavega við að þetta hafi verið giftingarhringurinn)

jæja ég man ekki meira í bili og biðst afsökunar á því ef ég hef ekki skrifað nöfn persónanna rétt.