Glæstar vonir, þátturinn 1. september Amber lenti aldeilis í því, hún viðurkenndi fyrir Rick að hafa sofið hjá Raymond án þess að nota verju og hann brjálaðist alveg. Sagði m.a. að hann hefði aldrei beðið hennar ef hún hefði ekki verið ólétt og fleira í þeim dúr. Síðan kom Brooke og tilkynnti Amber að hjónabandið yrði ógilt og að hún og mamma hennar ættu að hypja sig. Spurning hvort Amber segi þeim sannleikann um barnið, ef hún geirir það ekki þá vill familían örugglega halda barninu, en það kom ekkert fram hvað yrði um það.

Macy hélt þrusupartý á kaffihúsinu fyrir Kimberly. Hún mætti á staðinn og var strax umsetin af strákum (ekkert smá fyndið) sem vildu dansa við hana, síðan var hún bara á dansgólfinu með fjórum strákum í svaka rútínu, meeen það var fyndið :) Síðan kom CJ í svaka átfitti og plataði strákana í burtu svo hann gæti haft Kimberly út af fyrir sig. Kimberly sagði CJ að hún ætlaði að reyna að gleyma Rick og halda áfram með líf sitt, og var CJ náttla hæstánægður með það ;)

Jæja man ekki eftir fleiru en þetta var svona það helsta.

Simaskra
Kveðja simaskra