Jæja, ég sá nú því miður ekki þáttinn sjálf en systir mín var að segja mér svona það helsta :)

Eins og þið vitið þá endaði þátturinn, þann 19 ágúst, þannig að Brooke sagði við Amber og mömmu hennar að hún vissi leyndarmálið.. Dadara..
En hún var nú ekki að meina leindarmálið um dána barnið heldur að Raymond hefði getað verið pabbinn. Hún var víst allan þáttin eitthvað að rífast.

Rick og Kimberly eru eitthvað in love, hún allavega að deyja og hann er nú frekar heitur líka, semur lag til hennar og alles.
En þá bætist eitt við, CJ er að reyna að verða vinur Kimberly afþví að HANN er víst LÍKA hrifinn AF KIMBERLY.. Hvar endar þetta spyr ég bara???