Sko ég er ekki alveg sammála öllum með þessa þætti:) Ég elska þessa þætti og horfi næstum alltaf á þá!

Brooke: Brooke er bitch, ég þoli hana ekki og hún er bara búin að rústa öllu!!!! Laug og laug og laug og sveik og sveik og sveik!! Ég skil svo vel hvernig Stephanie þolir hana ekki og vorkenni Amber að eiga hana sem tengdarmóður! ohhh hún bara er VOND og ILL!! Svo vill hún ekki að Amber og Rick séu saman ! Þetta er hans líf og hún ætti bara að láta þau bara vera:( Hún er bara aðstoðarmaður skrattans eða eitthvað !

Stephanie: Steph er konan hans Eric's og var hún Brooke næstum búin að klúðra þessu hjónabandi eins og nokkrum öðrum! þetta er fín kona og gefur flestum séns til að sanna sig en er búin að gefast upp á Brooke. Hún hefur reynt að láta sér líka vel við Brooke og þola hana og hefur gengið nokkuð vel (sem ég skil ekki) en þetta er frábær persóna:)

Eric: Eric er bara gamall kall sem á börn og hefur haldið framhjá með Sheilu og Brooke (allavegana, lol) jamm hann er oft í Forrester dótinu og sést ekki mikið! Hann á Bridget og Rick en fyrstu árin hélt fólk að Ridge ætti Bridget en svo komst fólk að því að hann Eric gamli ætti þau bæði:)