Núna upp á síðkastið hafa ástarmál Stuarts verið eitthvað skrítin og það virðist vera eins og hann viti ekki alveg hvað hann vilji. Fyrst hélt hann ekki vatni yfir Dee, svo gat hann ekki lifað án Flick og svo núna lítur allt út fyrir það að hann sé eitthvað að fara að dandalast með Steph. Það kann kannski að hljóma sem dálítil þversögn að Steph sé mikið í kringum strák sem er yfir sig ástfanginn af Flick…en sú hefur nú samt verið raunin í undanförnum þáttum.

Þetta byrjaði með því að Stu kom í bæinn úr herbúðunum sínum og hitti fyrir Steph á kránni. Stu veit náttúrulega af rígnum á milli hennar og Flick þannig að hann ákvað að halda sig í dálítilli fjarlægð frá Steph. En Steph kom að honum og bauð honum í pool og síðan þá hafa þau verið alveg þvílíkir félagar og nánast óaðskiljanleg.

Núna er Steph komin í herbúðir Stuarts sem hjálparhella og líkar svona ágætlega. Stuart náði að bjarga Steph frá rúllandi tunnu sem stefndi á hausinn á henni og með því enduðu þau saman í grasinu, í nokkurs konar faðmlögum. Svaka rómó.

Ég ætla mér ekkiert að segja til um framhaldið en það er gífurlega gaman að velta því fyrir sér hvað sé í gangi. Er þetta bara ímyndun? Er eitthvað að gerast? Munu þau enda saman? eða kemur Flick aftur inní myndina og það verður annað “blóðbað”?

Það væri áhugavert að heyra hvaða skoðun þið Grannaunnendur hafið á þessari nýjustu sögufléttu þáttanna…