Ég er ekki búin að vera dugleg að tjá mig um nágranna síðustu tvo mánuðina en núna er ég væntanlega að byrja aftur í bili.
En ég hef verið að hugsa soldið um Flck og hvað er málið með hana!
Hún hefur breyst þvílíkt í þessi giftingarstússi og öllu því dóti, en ég er ekki að meina í útliti heldur persónuleikinn!
Af hverju er hún núna með Marc fyrst að hann og náttúrlega hún eru búin að særa Steph. Ef að ég væri hún mundi ég ekkert vilja með Marc að gera og flýja einhvert til bróður síns eða eitthvað!
En núna bara síðast í þættinum í dag var hún að tuða um að hún vildi fá vini sína aftur, en sorry Flick þú færð þau ekki aftur þú ert búin að gera svo mikið. Ef að hún hefði aldrei verið með Marc (ég skil systurnar reyndar ekki þvi að hann er svo væminn og ljótur) hefði allir verið happy, nema kannski hún.
Af hverju lét hún bara ekki Steph fá gjöfina sjálf? Já stórt er spurt.

En ég held að það sé ekki meira í bili.

kv.
Hrund