Darcy Tyler & Dee Bliss - The Story Darcy kom inní þættina fyrir u.þ.b 2 árum þegar hann kemur að dyrunum hjá kennedy fólkinu og Susan þekkir hann strax því hann er frændi hennar, á þessum tíma er hann í hjónabandi við konu að nafni Alice en Alice og Darcy eiga í vandræðum og hefur hann farið að heiman til að hugsa sinn gang.
darcy verður mjög náinn Karl og Susan og kynnist Dee og verða þau mjög góðir vinir og ástarförunautar og miklir vinir.
Darcy tekur brátt til starfa hjá Karl sem læknir á heilsugæslu stöðinni og hann og Dee vaxa nánar.
Brátt verður Darcy meðeigandi af stöðinni með Karl og þá byrja vandræðin, Darcy kemur með mann inn og ætlar hann að gera stöðina alveg eins og stöðina sem er í EDEN HILLS sem er mun fullkomnari og betri en þessi, en þau viðskipti ganga ekki upp og situr Darcy eftir með sárt ennið!
Í kjölfarið (man ekki hvort þetta var rétt fyrir eða rétt eftir) heldur hann fram hjá Dee Bliss sem er mjög skemmtilegur karakter í nágrönnum með Tess beztu vinkonu Dee.
Dee bjó og býr með Körtunni/Toadie og Bob hundinum.
Tess flytur til U.K/Bretlands og býr enn þann dag í dag þar.
Darcy er núna í slagtogi með Penny sem er einnig gömul vinkona Tess og mjög leiðinlegur karakter að mér finnst.
Dee og Stuart eru eikkað að byrja saman en ég held að Toadie og Dee byrji saman :D

þetta var kanski allt í einni rimmu en ég vill samt sem áður þakka þér fyrir stundir þínar kæri lesandi góður.

Grannar kveðjur frá Ramsay götu XorioN