Connor O´neill - The Story Ég ætla hér að fjalla um sögu Connor´s O´neill. Connor kom inní þættina fyrir um 2-3 mánuðum og kom að scully hurðinni og kynnti sig sem vin Jacks eina son Joe´s og Lyn.
Connor segir að fjölskylda hans í Írlandi hafi húsað Jack og Jack hafi sagt við hann að Scully fólkið muni endurgjalda greiðann ef hann væri í nágrenni við Ramsay-götu.
Í fyrstu þáttunum kemur í ljós að Mal Kennedy og Connor þekktust úr flugvélinni og höfðu þeir sitið hlið við hlið og rabbað mikið saman á leiðinni en þegar Mal fattar það að hann hafi týnt bakpokanum sínum og Joe finnur bakpoka merktann Mal Kennedy í fórum Connor´s þá halda allir í Ramsay götu og líka mjög margir hér á þessu áhugamáli að Connor sé ekkert nema svikari og ræningi en það ku ekki vera því að hann bara fann þennann poka. ( eða það er það sem ég vill halda því Connor er skemmtilegur )



Connor er mjög skemmtilegur og Scully fólkinu líkar mjög vel við hann og þá sérstaklega Michelle og Co.
Connor hefur ekkert kynnst Felicity og Steph mikið en hann hefur kynnst öllum öðrum.
Tad og connor hittust þegar Tad týnti vegabréfinu sínu og hann ásakaði Connor um verknaðinn en Connor tengdist því ekkert.
Tad og Connor sættust og urðu vinir og Connor aðstoðaði Tad í leitinni sem er nú brátt á enda.
Í brúðkaupinu var Connor sætavísir og stóð sig vel að sögn Lyn en eins og allir dyggir Granna aðdáendur vita sagði Marc NEI í brúðkaupinu af því hann var ástfanginn af Flick sem er ansi ógeðslegt.. ekki það að hún sé lagleg stúlka bara systir Steph!


Connor fékk vinnu hjá Joe og er núna að date-a Michelle og sögðu þau Joe það í fyrradag en hver veit hvað skeður á eftir.. en ég veit eitt …. það er það að Connor mun halda áfram í Grönnum og ekki hætta næstum því strax..

Kær Kveðja og Þakkir : XoRioN.Mp3 - Whool!