Í þættinum í dag byrjuðu Kahnee og Lísa en þær eru komnar til að vera og strax í fyrsta þættinum sem Kahnee er í þá byrjar hún að hössla Connor á fullu og rífa sig við Shell… Það er t.d. ein af manneskjunum sem ég hata…

Ég veit ekki hvernig Lísa er en hún sagði ekki mikið í þáttunum í dag eina sem ég man eftir var að hún sagðist vera að fara til kína eftir mánuð með mömmu sinni og pabba. En það gæti verið að hún fari ekkért og verði bara í þáttunum en það gæti líka verið að hún fari til kína en kemur síðan bara til baka og verði þá í þáttunum…

Maður bíður bara eftir að Max Hoyland fara að koma eins og margir vita flytur hann ásamt Boyd, Summer og Rosie í Honcock húsið (32) en það er bara spurning hvenær það gerist og ég er að vona að Max verði eitthvað skemmtilegri en allir aðrir í fjölskyldunni…

En er Tahnee ekki bara vonlaus að bjóða Connor á ballið þegar hún veit að hann og Shell séu saman… Hún virtist vera viss um að hann myndi frekar fara með sér heldur en Shell… Og hún var eitthvað að bulla um að Shell væri barnaleg…pff…