Í síðustu þáttum hefur verið mikið að gerast og ber þar hæst að nefna brúðkaup Marc og Steph sem fór út um þúfur á einkar dramatískan hátt. Brúðkaupið hefur eiginlega tekið allt púðrið úr þáttunum síðustu vikur og lítið pláss hefur verið gefið fyrir restina af fólkinu í Ramsay stræti. En nú virðist eitthvað vera að lifna yfir genginu því ég fann virkilega strauma á milli Dee og Toadie í þættinum sem sýndur var þann 5. maí.

Eins og flestir Nágrannaaðdáendur vita þá er Toadie búinn að vera í þáttunum frá því að hann var þakinn gelgjubólum og hafði sítt hár. Hann var vandræðaunglingurinn sem allir kviðu fyrir að umgangast og hvað þá að taka ábyrgð á. Hann hefur lent í ýmsum kvennamálaörðuleikum t.d. var hann næstum því búinn að giftast stelpu sem var bara með honum til þess að fá græna kortið og svo má ekki gleyma nýafstöðnu “ástarævintýri” hans með Maggie Hancock sem endaði með látum.

Dee Bliss er búin að vera all miklu styttra í þættinum en engu að síður er alltaf mikið að gerast hjá henni. Hún er enn fúl útí Darcy Tyler sem sveik hana á svo eftirminnilegan hátt með bestu vinkonu hennar, Tess. Einnig var Dee ólétt eftir Darcy en óhapp af völdum Toadie olli því að hún missti fóstrið og Toadie var að vonum miður sín eftir það. Ekki nóg með það þá var Dee næstum búin að kafna af völdum hnetu sem Toadie henti uppí hana og Toadie var alveg í köku, vesalings kallinn.

En nú fer að draga til tíðinda. Það eru orðnir mjög augljósir straumar á milli þeirra tveggja. Það er staðreynd að þau eru búin að vera bestu vinir og meðleigjendur í langan tíma og hafa gengið í gegnum súrt og sætt saman þannig að þeim þykir augljóslega mjög vænt um hvort annað. Málið er bara það hvort einhver rómantík fari að blómstra. Ég tel að svo sé.

Mér finnst Toadie og Dee passa mjög vel saman. Þau kunna á hvort annað og treysta hvort öðru fullkomlega. Þetta er eingöngu tímaspursmál að mínu mati hvenær við munum sjá fyrsta kossinn á skjánum þeirra á milli. Aðeins eitt vandamál skyggir á þetta ástarævintýri himnaríkis. Það er Stuart. Hann er skotinn í Dee og þau hafa eitthvað verið að dúlla sér saman en enn sem komið er sýnist mér ekkert alvarlegt vera þar á ferð.

Hvað finnst ykkur um þetta? ;)