Í dag gerðist það… Marc sagðist ekki getað gifts Steph og á því augnabliki hljóp Flick í burtu og Steph fattaði greinilega hvað var um að vera.. Lyn og Joe voru alveg miður sín allan þáttinn, einhver frænka þeirra kemur (Valda?) og veit ekkert í sinn haus, heldur að brúðkaupið sé ekki byrjað og eitthvað bull… Þátturinn snerist eiginlega bara um það að Flick ætlaði að fara en fór aðeins til hans Stuarts (heitir hann það ekki annars?) og hann reyndi að ræða við hana en í því augnabliki kom Marc inn og vildi fá að tala við Flick og þau fóru eitthvað að tala saman en hún sagði bara að hún vildi ekkert með hann hafa og svona.. Um leið og Flick hafði sett jakkan hans Marcs á axlirnar kom Steph æðandi inn og sá þau tala saman audda hljóð Steph brjáluð út.. Flick hljóp á eftir henni og ætlar að reyna að tala við hana en Steph er brjáluð en þá fara Marc og Stuart að slást og Tad reynir að stoppa það (mikið að gerast í einu)… Í því augnabliki sem Joe og Lyn koma út stekkur Flick upp í leigubílinn, sem var þarna ennþá frá því að frænka hennar hafði komið, og brunar í burtu.. Þátturinn endar semsagt á því að Steph liggur inn á baði og grætur mikið (reyndar fannst mér hún lýtið gráta miðað við Flick).
Þá er það víst.. Flick eyðilagði brúðkaupið þeirra eins og mig hafði grunað, en þá er bara spurning hvað gerist næst? Kemur Flick aftur á næstunni? Hvað verður um Steph? Eða Lyn?…
Spennan magnast og vonandi eru skemmtilegir þættir framundan!
Kv Hófí
Endilega kíkjið á síðuna mína