Jæja.. Í þættinum í dag var mikið um að vera. Brúðkaups undirbúningurinn í fullum gangi og margt gerðist! Lyn bað Connor að vísa til borðs og lét hann fá lista með nöfnunum og við hvaða borð þau sitja en eins og þið vitið þá kann Connor ekki að lesa svo hann var ekki alveg viss hvað hann átti að gera, en það reddaðist einhvern veginn, held með því að Michelle hlýddi honum yfir. Joe missti röddina í síðasta þætti og hefur ekki sagt orð síðan (sem er eilla bara mjög gott) og Lyn var alveg að flippa útaf brúðkaupinu. Í þættinum hringdi einnig læknir Steph og sagði henni að hún væri ekki ólétt :/ og hún var frekar miður sín en vildi ekki eyðileggja daginn með þessu, þetta var nú einu sinni brúðkaups dagurinn sjálfur. Svaramaður Marc kom mikið fram í þættinum, en hann er frændi hans og besti vinu en hann hefur komið áður fram í þáttunum og eitthvað tengst Dee, man samt ekki alveg hvað það var
Í lok þáttarins gerðist það merkilega, brúðkaupið hófst og var sem glæsilegast og þegar Steph var búin að fara með þessi “I do” orð þá var röðin komin að Marc en hann gat það ekki.. ég veit ekki hvað gerist meira því þátturinn var búinn, ég hélt ég myndi flippa yfir því að þurfa að bíða til morguns með að sjá næsta þátt en það kemur að þessa… kl 12 á morgun fáum við öll að vita hvað gerist í brúkaupinu, hættir Marc við og segist elska Flick eða hvað gerist??
Endilega kíkjið á síðuna mína