vááá, það hefur enginn skrifað hér í mánuð.

ég horfði nú á þáttinn í dag og hér var það helsta sem gerðist:
michell er alltaf e-ð að reyna við connor og ákvað að bjóða honum í picnic. en hann kom aldrei, því hún skildi bara eftir miða og hann er ÓLÆS… hvílíkt sjokk… úúúffff.

en allavega, susan er komin aftur og kom með einhverjar ýkt ljótar styttyr handa öllum og enginn þorir að segja neitt við hana…
malcom bað harold afsökunnar á að hafa reynt að kaupa hann út úr kaffistofunni og hætti hjá cuppa diem, en gaf harold e-a möppu frá þeim sem á eftir að koma sér vel…

tad er enn að leita að vegabréfinu sínu og sakaði connor um að hafa stolið því, en þar sem þjóðurinn skildi eftir miða og coonor er ólæs, var það ekki hann.

harold og lou eru enn að eltast við rosie og lou sagði henni að hann væri skotinn í henni og hún gaf ekkert út á það og segist vilja fara rólega í sakirnar og ekki særa harold.
það kom upp að það hefði kviknað í kirkjunni út frá blómunum sem lou kom með og rosie er alveg í rusli yfir þessu öllu saman.

ég man ekki eftir fleiru, nema að það er komin ný byrjun og er hún mun skárri en appelsínuguli vibbinn sem var áður.

afsakið stafsetninguna en klukkan er hálfþrjú um nótt…
“let's build more cars so we can drive away before we choke…”