Ætla að rifja upp það helsta úr þættinum í gær.

Michelle stendur en þá í þessu eineltis máli í skólanum, strákarnir eru alltaf að stríða henni í leikfimi,pabbi hennar er eitthvað að tala um þetta við hana og þá birtist einhver strákur og segist vera vinur sonar þeirra og heimtaði gistingu. Joe og Lyn voru ekki alveg á því að trúa honum og hann ákvað að fara í göngutúr til að leyfa þeim að hugsa málið, þau hringdu í son sinn og jú jú þetta var vinur hans og ákváðu þau að leyfa honum að vera í smá tíma. En svo finnur Joe bakpoka sem er merktur Malcolm Kennedy. Hann hafði því stolið bakpokanum hans Mal þegar þeir voru að koma með sömu flugvél?? Eitthvað skrítið

Mal er sem sagt komin í heimsókn til mömmu sinnar og pabba, mér finnst á honum að hann sé í einhverri klípu, kannski er hann atvinnulaus? Hann gæti líka bara verið í heimsókn til að sjá Ben litla og svona þó hann hafi ekki farið og hitt hann fyrsta daginn sem hann var í bænum.

Svo er allt að gerast hjá Tad, hann var að spila á einhverju skate svæði og hitti þar tvo rosalega góða skatera, sem buðu honum að koma með þeim í smá hringferð í 3 mánuði og spila á þeim stöðum þar sem þeir eru að renna sér. Fyrst vildi hann ekki fara út af Harold, en svo náðu hann og Kartann að tala Lou og Harold til að búa saman meðan Tad myndi fara í þessa ferð og tókst þeim það, það verður skrautlegt að sjá hvernig sú sambúð á eftir að fara.

Man ekki meira endilega bætið við ef ég gleymdi einhverju :)
Brostu framan í heiminn og hann mun brosa framan í þig…..