Já Ian sagði Elly að Karl væri faðir hennar, eða móðir hennar heldur það. En hvað haldið þið?
Ég held að Karl sé faðir hennar, af því að mér finnst hún vera svo lík honum, þau eru bæði dökkhærð og bara allveg eins.
Em ef að Karl veit þetta, hvernig ætli honum líði? Honum hlítur að líða rosa illa að vita að hann á aðra dóttir með systur Susan!
En Libby var geðveikt reið þegar Elly var að forvitnast um hvort að Karl hafi einhvern tíma haldið framhjá og Libby sagði bara að það sé einkamál og síðan viðurkenndi hún að hann hafði haldið frjam hjá henni einu sinni, en bara einu sinni. Það á þá að vera með Söruh (dökkhærða stelpan á nr 30, en hún er núna hætt). En raunin er að Karl hefur haldið tvisvar framhjá þegar hann fór í þessi voðalegu skíðaferðalög með systur Susans :)

Jæja langaði bara að fræða ykkur um faðernið, eða segja bara mína skoðun á þessu.
Endilega segið ykkar skoðun á þessu, en ekki koma með nein comment um hvernig ég nenni að horfa á þetta!

Kv.
Hrund