Jæja Harold er búinn að fá sjónina :) ég er mjög happy hans vegna…..
En muniðið ekki þegar Karl var alltaf að finna pabba Elly nú hann fann hann (Ian) og sagði Elly það, eða hún komst að því. Hún vildi hitta pabba sinn og þegar hún hitti hann þá sagði hann að hann væri ekki faðir hennar og sagði hann þá að það væri líklegast Karl :) þannig að Karl hefur haldið fram hjá Susan með systur Susan og systir Susan hefur þá eignast Elly, en hvers vegna ætli hann hafi verið að leita að föður Ellyar, vegna þess að hann var að gá að því hvort að hann væri faðir hennar :) Þetta gengur allt upp!
Marc og Steph eru jafn hamingjusöm og áður og þau hafa nú flýtt brúðkaupinu vegna þess að móðir Marcs líst svo illa á Steph :(

En þetta er allt sem ég man eftir í bili.

Kv.
Hrund