Þar sem Matt lenti í slysi held ég að allir hafi ekki náð því hvað gerðist svo að ég ætla að vera svo góð að lýsa þessu frá a-ö….

Eins og flestir hér vita voru nokkrir strákar alltaf að mana Matt upp í spyrnu eða hvað sem það heitir, þá ákvað hann að prufa einu sinni þar sem honum vantaði aurinn og vann í fysta skiptið og vann nógu mikið til þess að borga upp leiguna, og var hann ekkert smá happy með það svo að gaurarnir voru alltaf að mana hann upp í aðra spyrnu og hann vildi það. Nú hann var að fara að leggja á stað þá stökk Leo upp í bílinn hjá Matt (Leo vissi af þessum kappökstrum) en Matt var alltaf að segja honum að drulla sér út en Leo vildi bara vera þarna inni.
Svo að hann lagði af stað og komst á undan en beygði þá óvert útaf og keyrði náttlega í veg fyrir hinn bílinn (það voru tveir strákar í hinum bílnum) og matt keyrði semsagt á Harold og bílarnir báðir í klessu eftir að hafa keyrt á tré.
Eftir slysið var allt í lagi með Leo en Matt átti að vera á sjúkrahúsi (veit ekki allveg af hverju), en hvað hina tvo strákana varðar var einn í lífshættu en næstum því allt í lagi með hinn strákinn en Harold er líklegast blindur og það kemur bráðum í ljós hvort að hann geti fengið eitthvað sjónina aftur.
Foreldrar stráksins sem er í lífshættu kærðu Matt og ef strákurinn deyr þá fer Matt í fangelsi fyrir gáleisi í akstri, þar sem hann átti afleiðinguna af slysinu.
Matt fer semsagt pottþétt í fangelsi nebblega að foreldrar vildu fá presti til þess að biðja yfir stráknum sem er í dái.
En þá er þetta allt saman talið upp nema það sem skeði í lokin á þættinum í dag.
Matt klæddi sig í sín föt og er semsagt að flýja út af sjúkrahúsinu.

Vona að þið sem vissuð ekki allt saman um slysið eruð fróðari núna og getið fylgst með næsta þætti af nágrönnum vitandi um slysið.

Kv.
Hrund