Þessi Barb sem sér um klúbbinn sem Drew vinnur hjá, hringdi í hann og sagði honum að sá sem Drew kýldi ætlaði að kæra hann fyrir líkamsárás. En þið sem ekki sáuð þann þátt þá var Barb með einhverjum dyraverði inni einhvers staðar og einn gæji byrjar að bögga Drew. Drew fer bara að verja sig og gæjinn lendir á borði og rotast. Þannig að Drew þarf að fara að leita sér að lögfræðing og kannski fara fyrir rétt, allt á afturfótunum hjá þeim Libby.

Tad og Cherry kærastan hans komu heim af djamminu og voru eitthvað að kyssast og voru með læti. Hún vildi fá að gista en Tad vildi það ekki vegna Harolds. Svo hún fór heim. Daginn eftir voru þau í sundi og Tad fór í sturtu en Cherry var á bikini inní stofu að þurrka sér þegar Harold kom heim. Honum fannst það ekki viðeigandi og sagði henni það, honum fannst heldur ekki viðeigandi að hún væri að skipta um föt heima hjá honum, eftir að hann fann sokkabuxurnar hennar í stofunni. Hún tók þessu eitthvað illa og hætti með Tad þess vegna. Tad varð auðvitað sár útí Harold.

Flick líður illa í skólanum, finnst allt ömurlegt, herbergið hennar er illa lyktandi, alltof heitt þarna og hún var ekkert að blanda geði við krakkana í skólanum. En hún sagði foreldrum sínum ekkert frá því. Svo var hringt í Lyn frá Eden Hill skólanum þar sem Flick sótti um, og sagt að það hefði losnað pláss á námskeiðinu. Lyn hringdi í Flick og sagði henni frá því en þetta var allt svaka mál því Lyn sagði þeim í Eden Hill að Flick væri ánægð í hinum skólanum, sem reyndist ekki vera satt. Gaman að sjá hvernig það endar, hvort hún skipti um skóla eða ekki.

Allir eru reiðir útí Shell og Elly vegna þess að þær voru að keyra með gömlu konuna, og Joe sagði Susan og Karl að honum finndist Elly vera slæmur félagsskapur fyrir Shell og Elly heyrði það, en Susan varði Elly og sagði að hún hafi bara meint vel með því að reyna að bjarga konunni. Elly kom þá með blómvönd handa Susan og KArl. Kannski er hún alls ekki svo slæm eftir allt saman.