Jæja, sá sem bankaði á dyrnar hjá Steph var enginn annar en…. Woody!!!!
Hún var auðvitað í sjokki að sjá hann aftur og var ekki að trúa þessu en hún stökk ekki á hann og kyssti eða neitt þannig. Mitch var akkúrat hjá henni og voru þeir ekki sáttir við hvorn annan. Mitch sagði líka Steph að hann væri ástfanginn af henni svo hún er ekkert smá ringluð og veit ekkert hvað hún á að gera. Get svo sem skilið það. En Woody var í felum fyrir Kelly en hann var drepinn þegar hann reyndi að svíkja díler. Og var það einhver Barry sem dó í slysinu forðum.
Drew fór í sveitina sína að keppa í rodeo fyrir pabba sinn. Hann var búinn að veðja á hann og einnig gamall vinur. Svo var Scottie þarna og hann er ekki enn búinn að borga skuldina. En sagði að hann hafi veðjað aleigunni sinni gegn Drew, svo að ef hann vildi fá 10 000 dalina sína aftur yrði hann að tapa. Erfið ákvörðun, vinna svo að pabbi hans fengi pening, eða tapa svo hann fái sjálfur pening… en hann vann keppnina :)
Libby fór eitthvað að labba um svæðið og fór inní einhverja hlöðu að klappa litlum ponies en þá kom einhver og lokaði óvart hlöðunni svo hún komst ekki út. Og þá fékk hún hríðir!!!! En eins og kannski flest ykkar vita, þá getur hún ekki fætt barnið, það verður að taka það með keisaraskurð, annars getur hún dáið :(